136. löggjafarþing — 105. fundur,  17. mars 2009.

vextir og verðtrygging.

401. mál
[16:10]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Við getum ekki afnumið verðtrygginguna fyrr en verðbólgan er orðin svo lág að greiðslubyrðin af óverðtryggðum vöxtum verði ekki óbærileg. Ef verðbólgan er 10% og vextir eru segjum 6% eða 5% þá erum við að tala um 15% vexti. Það er óbærilegt. Maður sem skuldar 30 millj. borgar engar 4,5 millj. í vexti á ári. Hann getur það ekki. Það er því ekki fyrr en verðbólgan er komin niður í 4–5% eða jafnvel neðar að við getum farið að breyta þessu og við getum ekki breytt því á gildandi samningum. Það er ekki hægt. Það yrði að gilda frá og með deginum í dag að ekki megi lána verðtryggt. Menn geta ekki breytt gildandi samningum, hvorki gagnvart lífeyrissjóðum né öðrum. Þar kemur eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar inn í og líka það að við viljum ekki koma í bakið á lífeyrissjóðunum. Tökum sem dæmi mann með 50 þús. kr. úr lífeyrissjóði og á núna að fara að skerða um 10% vegna hrunsins í haust, ef við ætlum að fara að skerða verðtryggðar eignir lífeyrissjóðsins líka yrðum við að skerða þennan mann enn meira. Mér finnst það ekki sæmandi að skerða fólk sem er með lágar greiðslur úr lífeyrissjóði til þess að bæta stöðu annarra sem eru með miklar eignir.