136. löggjafarþing — 108. fundur,  18. mars 2009.

samningur um siglingar yfir Breiðafjörð.

387. mál
[15:47]
Horfa

samgönguráðherra (Kristján L. Möller) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þá umræðu sem hér er um ferjusiglingar um Breiðafjörð. Við skulum hafa það í huga sem kom fram í ræðu hv. fyrirspyrjanda að samningurinn sem var gerður 2005 var niðurtröppunarsamningur af hálfu þeirrar ríkisstjórnar sem sat 2003–2007, sem átti að ljúka 31.12.2009. Það er auðvitað það verk sem við þurfum að framlengja og það er það sem ég hef gefið leyfi til að verði framlengt.

Síðan getum við aftur haft skoðanir á því hvað á að framlengja þetta til langs tíma. Þarna er sett maí 2011. Við skulum bara vona að okkur takist að vinna hratt í þeim vegaframkvæmdum sem við erum að gera hér að umtalsefni og ég er mjög hlynntur. Ég bendi á það, virðulegi forseti, að fyrsta útboðsverkið hjá Vegagerðinni eftir útboðsstoppið, eftir að við máttum fara að bjóða út á ný, var verkefnið Kjálkafjörður – Vatnsfjörður og fylgir því frá þeim sem hér stendur ákveðin yfirlýsing um mikilvægi þessa verks. Ég hef áður sagt það, virðulegi forseti, að ástand vega á sunnanverðum Vestfjörðum er okkur Íslendingum ekki til sóma og þarna þarf verulega að taka á.

Þess vegna er ég ákaflega ánægður með að þetta verkefni skuli hafa verið fyrsta verkefnið sem var boðið út. Viðræður standa nú yfir við verktaka og verður vonandi undirritaður verksamningur sem allra fyrst.

Þá stöndum við aftur frammi fyrir þverun Djúpafjarðar og Gufufjarðar og veginum í Teigsskógi. Það mál bíður því miður hjá Hæstarétti. Hvort það verður tekið fyrir fyrir dómhlé eða eftir veit ég ekki um, ég óttast að það verði eftir, og þá hafa þessar tafir orðið á því. Af minni hálfu er enginn bilbugur á þeirri framkvæmd, hún á að halda áfram. En málið er sem sagt hjá Hæstarétti og bíður þar þessa æðsta dómstóls sem fjallar um öll verk sem deilur eru um. Það er sárgrætilegt að það skuli vera (Forseti hringir.) deilur um jafnsjálfsagðar framkvæmdir og samgönguframkvæmdir. Það er ekki bara þarna vestur á fjörðum, það er á fleiri stöðum.

Að lokum, virðulegi forseti, (Forseti hringir.) vil ég bara aftur þakka þingmönnum fyrir þessa ágætu samgönguumræðu. (Gripið fram í.)