tilhögun þingfundar.
Þrátt fyrir ákvæði 4 mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfunda, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag, þ.e. þar til umræðum um dagskrármálin er lokið. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? (Gripið fram í: Til miðnættis?) Gæti orðið lengur samkvæmt þessu. Hv. þm. Arnbjörg Sveinsdóttir óskar eftir atkvæðagreiðslu og síðan taka við aðrar atkvæðagreiðslur í framhaldi þannig að kallað verður til atkvæðagreiðslu. — (Gripið fram í.) Þar til dagskrá er lokið.