náttúruvernd.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. umhverfisráðherra fyrir þetta. Ég bendi þó á að það hafa gefist full tækifæri til að koma til móts við þetta hjá Landvarðafélaginu nú þegar. Hæstv. ráðherra hefði því getað hugað að þessu þegar frumvarpið var lagt fram. Þegar stéttarfélag leggur fram slíkar athugasemdir er líka spurning hvort samtök þeirra og BHM hafi skoðað þessa stöðu landvarðanna sem er óneitanlega nokkuð sérstök. En ef landverðir fá þetta námskeið endurgreitt þegar þeir hefja störf kemur það í sjálfu sér í sama stað niður en ég hvet hæstv. ráðherra eindregið til að skoða þetta.