niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.
Virðulegi forseti. Hv. iðnaðarnefnd fjallaði um þetta mál og málefni um niðurgreiðslur á húshitunarkostnaði hafa verið til umfjöllunar lengi. Menn hafa komist að þeirri niðurstöðu að fara þessa leið til að gæta jafnræðis í búsetu á Íslandi. Við erum gríðarlega rík, íslenska þjóðin, af hita, jarðhita og jarðvarma og erum svo lánsöm að geta að langmestu leyti hitað húsin okkar með jarðvarma. Ef það er ekki hægt beint höfum við gripið til þeirra ráða að nýta raforku sem líka kemur úr endurnýjanlegum orkugjöfum til að hita upp húsin. Því má segja að við náum mestmegnis að hita húsin okkar á gríðarlega umhverfisvænan hátt og nýta náttúruauðlindir okkar til þess.
Jarðlög Íslands eru mismunandi og menn búa misnálægt sprungusvæðum þar sem mesti hitinn er. Þess vegna höfum við komist að þeirri niðurstöðu, og um það hefur ríkt sátt í þinginu, að fara þá leið að gæta jafnræðis með þeim hætti sem hér er gert. Það sem jafnframt er verið að gera í frumvarpinu er að leggja af stað í nýjan leiðangur, má segja, í þessum efnum með því að hvetja til orkusparnaðar og fara nýjar leiðir í því að hita upp húsnæði þannig að til lengri tíma litið megi lækka húshitunarkostnað og þar með líka lækka niðurgreiðslurnar. Því er verið að fara nýjar leiðir, virðulegi forseti, til þess að ná því markmiði sem hv. þingmaður fjallaði um.