136. löggjafarþing — 112. fundur,  24. mars 2009.

niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.

397. mál
[21:12]
Horfa

Frsm. iðnn. (Katrín Júlíusdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðu hans og spurningar til okkar. Það vill þannig til að það var haldinn fundur í iðnaðarnefnd sérstaklega um þetta mál, um þær hækkanir sem hann vék að og komu fram í bréfi frá Bláskógabyggð. Þar kölluðum við til orkufyrirtækin og orkusölufyrirtækin og fórum yfir þessar hækkanir. Það var nefnilega ekki bara Rarik sem hækkaði verðið um 15% heldur hækkuðu fleiri raforkusalar gjaldskrár sínar. Þetta hefur verið að gerast um allt land og fyrir því eru margar ástæður.

Þetta er auðvitað eitthvað sem við verðum að skoða þegar horft er til uppbyggingar í atvinnulífinu á næstunni. Það er verið að skoða verðskrá til þessara aðila sem hv. þingmaður nefnir. Ég er þeirrar skoðunar að við þurfum að fara vel í gegnum þau mál og iðnaðarnefnd er byrjuð á því með því að kalla þessa aðila til sem hafa farið yfir sína hlið málsins með okkur.

Ég tel hins vegar ekki og við töldum ekki að þetta mál kæmi því beint við heldur væri hluti af stærra samhengi. Eins og hv. þingmaður kom inn á eru fleiri aðilar en eingöngu hið opinbera, þetta eru líka raforkusölufyrirtæki sem þarna eiga hlut að máli og allt helst þetta jú í hendur.

Ég tek undir áhyggjur hv. þingmanns vegna þessa háa kostnaðar hjá garðyrkjubændum. Ég held að við ættum í sameiningu að geta farið betur yfir þau mál en nefndin hefur gert nú þegar, hugsanlega með öðrum nefndum sem í hlut eiga. Ég lýsi yfir vilja til þess að gera það og iðnaðarnefnd hefur nú þegar hafið slíka skoðun og við eigum án efa eftir að gera meira í því gefist okkur tími til þess.