niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.
Hæstv. forseti. Það er verið að taka úr pottinum. Núna fer 1%, eins og stendur hér í umsögn fjármálaráðuneytisins, til þessara orkusparandi aðgerða og stofnstyrkja, en það á að breyta því í 3%. Það þýðir að 3% af þessum 1.176 millj. kr. fara nú í þær aðgerðir. Það þýðir að minna verður eftir og bara 97% úr pottinum fara til beinna niðurgreiðslna eins og kerfið er. Peningarnir koma hvergi annars staðar frá inn í kerfið. Þannig að það hlýtur að hafa áhrif á beinu niðurgreiðsluna þegar 3% fara í þessar séraðgerðir.
Áður fóru sem sagt 99% úr pottinum í beinu niðurgreiðslurnar, en nú verða það 97%. Þannig að ekki getur annað verið en að þetta hafi áhrif á það sem fer beint til notenda. Þessi 3% eru nýtt til sérverkefna, sem varða það að byggja upp nýjar hitaveitur og í verkefni til að fara í ýmiss konar orkusparandi aðgerðir. Þannig að það sem fer beint til heimilanna hlýtur að minnka og húshitunarkostnaður hvers heimilis að hækka.