niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að lengja umræðuna frekar en held að þarna séu atriði sem skipta verulegu máli og þess vegna legg ég til að málið verði tekið aftur inn í iðnaðarnefnd og þetta gert alveg skýrt. Því auðvitað skiptir mjög miklu máli hvernig orkukostnaður heimilanna kemur út á þeim svæðum þar sem niðurgreiðslurnar skipta raunverulega máli.
Ég veit alveg hversu mikil umræða er um þetta atriði á köldu svæðunum þar sem orkureikningurinn hefur gífurlega mikil áhrif á hag hvers heimilis. Þannig að ég held að ekki sé hægt að skilja við þetta mál hér á Alþingi án þess að við höfum gert okkur fullkomlega grein fyrir því hvaða áhrif þetta hefur á orkureikning heimilanna.
Eins og ég sagði áðan er ég sammála því að menn fari í aðgerðir til að reyna að hvetja til notkunar annarra orkugjafa. Þessi tækni varðandi varmadælu er greinilega nokkuð sniðug lausn, eins og hún hefur verið kynnt í þessu máli. En ég held að jafnframt sé mikil nauðsyn á því að taka upp kynningarátak hvað þetta varðar. Því ég er viss um að almennt þekkja menn ekki þá leið og ef þarna er góður kostur til að spara hitakostnað til framtíðar á auðvitað að hvetja til þess. En til þess þarf fólk að þekkja þennan kost.
Sjálf hef ég tekið þátt í því að hvetja til orkusparandi aðgerða. Við settum af stað átak í heimabyggð minni í samvinnu við Rarik um orkusparandi aðgerðir á heimilum, bæði varðandi það hvernig stilla mætti hitakerfi betur og eins einangrun. Á þeim tíma var að koma upp ný tækni í glergerð þannig að með glerjun húsa var hægt að spara mjög verulega í húshitunarkostnaði. Þannig að allt eru þetta atriði sem hægt er að ráðast í. En eins og ég segi þarf fólk að þekkja þetta. Ég hvet þá til þess að menn fari í svona kynningarátak og kynni möguleika í þessa veru fyrir íbúum á köldum svæðum. Þannig að það komi fram
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að lengja þetta meira, en óska eftir því að málið verði tekið aftur inn í iðnaðarnefnd og alveg verði skýrt hvaða áhrif þetta mál hafi á heimilisbuddur þeirra sem búa við þessar aðstæður og heimilin verða auðvitað að hafa einhverja hugmynd um hvort orkureikningar þeirra hækka. Ég veit til þess að sérstaklega úti á landi þar sem fullorðið fólk situr jafnvel eftir í stórum húsum eru aðstæður víða þannig að menn geta ekki minnkað við sig. Þar fer orkunotkunin oft og tíðum töluvert yfir þær 40.000 kílóvattstundir sem eru niðurgreiddar og um leið og farið er yfir þær hækkar orkureikningur þeirra íbúa hlutfallslega mjög mikið.
Eins og ég segi. Það eru ýmis ráð til þess að bæta úr þessu og nauðsynlegt að það verði gert. En til þess þarf fólk að þekkja þetta og við hér á Alþingi þurfum jafnframt að vita hvaða fjárhagslegu áhrif þessi breyting mun hafa fyrir heimilin.