136. löggjafarþing — 112. fundur,  24. mars 2009.

visthönnun vöru sem notar orku.

335. mál
[22:23]
Horfa

Björk Guðjónsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp um visthönnun vöru sem notar orku. Frumvarpið byggir á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um vistvæna vöruþróun. Markmiðið með frumvarpinu er að stuðla að þróun og notkun orkunýtinna vara með það að markmiði að tryggja visthönnun vöru með minni orkunotkun og draga úr áhrifum orkunotkunar á umhverfið. Þá er frumvarpinu ætlað að tryggja frjálst flæði slíkra vara um EES-svæðið. Hér eru þó undanskilin farartæki og tæki sem þegar hafa verið markaðssett og tekin til notkunar eða flutt inn við gildistöku laganna. Athugasemd kom í umsögn varðandi óskýrt orðalag í 3. grein um vöru sem notar orku og leggur nefndin til þær breytingar að sá liður verði felldur niður og er sérstaklega áréttað í því sambandi í nefndaráliti að frumvarpið er um visthönnun vöru sem notar orku en tekur ekki til búnaðar til raforkuflutnings eða raforkuframleiðslu.

Í athugasemdum við frumvarpið kemur fram að lítið reyni á lögin hér varðandi framleiðslu tækja þar sem lítið sé hér framleitt af vöru sem falli undir lögin. Í umsögn Tæknimiðstöðvar Íslands kemur fram að þetta gæti breyst á stuttum tíma því að nú sé í einkaleyfisferli fyrsti hverfillinn sem fundinn hefur verið upp hér á landi og stefnt er að framleiðslu hans hérlendis. Það er því nauðsynlegt að hnykkja á þessu atriði í nefndarálitinu. Það er auðvitað mikilvægt að stuðla að þróun og notkun orkunýtinnar vöru með það að markmiði að tryggja visthönnun vöru með minni orkunotkun og draga þar með úr áhrifum orkunotkunar á umhverfið. Einnig er mikilvægt að íslenskir framleiðendur tryggi að vörur þeirra uppfylli kröfur sem almennt eru settar á EES-svæðinu í þessum efnum. Hins vegar eru næstum engir framleiðendur hér á landi að þeim vörum sem tilskipunin nær til en það kann þó að breytast í náinni framtíð og því er mikilvægt að sömu reglur gildi hér á landi og annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu um visthönnun vöru sem notar orku.

Við 1. umr. málsins kom fram í ræðu hæstv. iðnaðarráðherra að framkvæmdastjóri Evrópusambandsins hafi lagt fram vinnuáætlun sem hefur að geyma það sem kalla má leiðbeinandi lista yfir vörur sem eiga að hafa forgang við setningu reglna um orkunýtni. Nefndi hann sem dæmi loftræstikerfi, ýmis matreiðslutæki, auk fleiri hluta. Meðal þess sem hæstv. iðnaðarráðherra taldi upp eru varmadælur, sem hafa verið að ryðja sér til rúms t.d. í Svíþjóð til að lækka húshitunarkostnað þar í landi. Slíkar dælur væri hægt að nota hér á landi á köldum svæðum til að draga úr húshitunarkostnaði og minnka þörf á niðurgreiðslum til húshitunar til lengri tíma litið.

En hvað er visthönnun vöru? Í athugasemdum við frumvarpið kemur fram, með leyfi forseta:

„Margar skilgreiningar eru á því hvað felist í visthönnun vöru en megininntak hennar er að hún sé athöfn sem skilgreinir umhverfislega þætti vöru og samþættir þá inn í fyrstu stig þróunar vörunnar. Aðrir þættir, svo sem virkni, kostnaður, afköst, gæði, lagalegir og tæknilegir þættir, verða einnig að vera teknir til greina við þróun vörunnar. Markmið visthönnunar vöru er því að draga úr notkun óendurnýjanlegra orkugjafa og lágmarka umhverfisáhrif ásamt því að stuðla að vitundarvakningu meðal almennings um þeirra náttúrulega umhverfi og hvernig best sé að varðveita það. Oft er litið á visthönnun vöru sem tæki til að tryggja sjálfbærni. Visthönnun vöru hefur mest vægi hvað varðar þróun vöru á sviði þungaiðnaðar og leikur vistferlismatið þar stórt hlutverk til að greina umhverfisáhrif mismunandi hönnunarmöguleika.

Almennt er litið á visthönnun vöru sem lausn við aðsteðjandi umhverfisvá á alþjóðavísu, þ.e. örum vexti atvinnulífsins, mikilli fjölgun íbúa heimsins, eyðingu náttúruauðlinda ásamt óbætanlegu tjóni á vistkerfum og líffræðilegri fjölbreytni. Með visthönnun vöru er mögulegt að afstýra þessari hættu með því að finna upp nýjar hönnunarlausnir og aðferðir í iðnaði sem leiða til minna álags á umhverfið. Í þessu sambandi er hægt að taka til greina að bæði bílar og vörur geta verið hönnuð með það að markmiði að hægt sé að gera við þau og einnig taka þau í sundur til endurvinnslu. Einnig er mikilvægt að tæki séu búin til úr endurvinnanlegum og endurnýjanlegum efnum. Ef rétt er farið að má gera ráð fyrir að slíkar vörur verði að fullu sambærilegar í verði og vörur sem ekki eru hannaðar á grundvelli visthönnunar vöru.“

Virðulegi forseti. Orkusparnaður virðist mjög fjarlægur okkur Íslendingum og spurning hvort ekki þurfi með einhverjum ráðum að koma af stað hugarfarsbreytingu hvað það varðar hér á landi. Í gegnum tíðina hefur verið hægt að ná árangri í ýmsum málum þar sem æskilegt hefur verið að breyta hegðunarmunstri mannfólksins með því að hrinda af stað átaki í þeim efnum, t.d. með auglýsingum í blöðum og ljósvakamiðlum. Kannski er kominn tími á slíkt átak hér á landi, átak í orkusparnaði, átak í að brýna fyrir fólki nauðsyn þess að spara orku og að leiðbeina því og benda á ýmis ráð um hvernig hægt sé að að spara orku, eins og við ræddum reyndar áðan í málinu um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar á köldum svæðum.

Að lokum, virðulegi forseti, tek ég undir að nauðsynlegt er að frumvarp þetta verði að lögum til að tryggja samræmda löggjöf innan EES og koma í veg fyrir að í framtíðinni verði fluttar inn vörur sem uppfylla ekki kröfur annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu.

Við sjálfstæðismenn í iðnaðarnefnd, sem eru auk mín hv. þingmenn Herdís Þórðardóttir og Kristján Þór Júlíusson, erum með á nefndarálitinu og styðjum málið.