visthönnun vöru sem notar orku.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður flutti mjög einkennilega ræðu. Ég vonaðist til að þessi mikli neytendafrömuður sem hann er kæmi upp og fagnaði þessu máli vegna þess að það er til þess fallið að nú á að gera neytendum kleift að sjá það með merkingum hvaða vörur eru hannaðar á þann hátt að þær spari þeim orku, að neytandinn geti mögulega farið að velja sér vörur til að lækka hjá sér rafmagnsreikninginn. Um það snýst málið. Ég saknaði þess í málflutningi hv. þingmanns að farið væri yfir þau mál og hann kæmi með sína sýn sem fyrrverandi neytendafrömuður og formaður Neytendasamtakanna. Almennilegar merkingar á vörum hefur algerlega skort hér á landi þannig að íslenskir neytendur geti valið sér vöru út frá þekkingu og góðum merkingum. Um það snýst málið.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður gagnrýnir ýmislegt. Ég sagði í upphafi máls míns þegar ég fór yfir nefndarálitið að nefndin hefði tekið málið sérstaklega til skoðunar, þ.e. hugtakanotkun og fjölmargar umsagnir, ef hv. þingmaður hefði gefið sér tíma til að kynna sér það, nefndarálitið og þær breytingartillögur sem við leggjum til í nefndarálitinu. Þar má glöggt sjá að um þessa hugtakanotkun var töluvert fjallað og gerir nefndin talsverðar breytingar á hugtakanotkuninni í frumvarpinu og í breytingartillögum sem fylgja nefndarálitinu, þar með talið það sem hv. þingmaður talaði um, þ.e. 1. málslið í 2. gr., þar sem tekið er á því sérstaklega þegar við gerum breytingu á orðalagi 3. gr. sem skilgreinir hvaða vara notar orku og hvað þar er við átt.