136. löggjafarþing — 112. fundur,  24. mars 2009.

raforkulög.

398. mál
[23:44]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Erindi mitt í þennan ræðustól er að leiðrétta orð hv. þm. Arnbjargar Sveinsdóttur. Ég hef aldrei átt sæti í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og hef þess vegna hvorki langa né mikla reynslu af stjórnarsetu þar eins og þingmaðurinn fullyrti.