136. löggjafarþing — 112. fundur,  25. mars 2009.

fundarstjórn.

[00:06]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Ég vil inna hæstv. forseta eftir því nú þegar nokkuð er komin fram yfir miðnætti hversu lengi standi til að halda áfram þessum fundi. Ég vek athygli á að fundir hafa staðið í þinginu í allan dag. Nefndafundir hófust klukkan hálfníu í morgun og gert er ráð fyrir að margar nefndir komi til starfa klukkan hálfníu í fyrramálið. Mér leikur hugur á að vita hvað forseti hyggst fara langt í dagskránni áður en þingfundi lýkur.