136. löggjafarþing — 112. fundur,  25. mars 2009.

fundarstjórn.

[00:11]
Horfa

Forseti (Guðbjartur Hannesson):

Forseti hefur svarað því áður að stefnt yrði að því að ljúka þingi fyrir dymbilviku. Það hefur einnig komið fram að við erum með sérstaka þingfundaviku vegna óska um að hér verði ekki fundur á fimmtudaginn. Því er áríðandi að nýta tímann vel, eins lengi og við getum. Þess vegna ætlum við að nýta tímann eitthvað fram á nótt. En það hefur ekki verið ákveðið nákvæmlega hversu lengi.