136. löggjafarþing — 112. fundur,  25. mars 2009.

skaðabótalög.

438. mál
[02:08]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég var aðallega að gagnrýna hvernig þetta er rætt og líka það að svo mikið af hrópandi göllum eru í núverandi kerfi sem ekki eru lagaðir. Ég tala aftur og aftur við öryrkja sem eru bótalausir en fengu eingreiðslu, fyrir kannski 7 árum, sem er löngu horfin. Eingreiðslan er horfin en tjónið er eftir. Menn eru ekkert að laga það neitt. Ætla þeir að bíða í 100 ár eða hvað? Þetta væri hægt að gera á þremur mánuðum ef menn ynnu virkilega í einni (Gripið fram í.) beit.

Ef menn hugleiddu hvað eingreiðslan er mikill skaðvaldur fyrir tjónþolann, (Gripið fram í.) miklu betra er fyrir manninn eða barnið eða hvern sem er að fá bætur mánaðarlega eftir því sem þörfin krefur. Og það að endurhæfing sé líka byggð inn í kerfið þannig að maðurinn sé ekki tekinn úr sambandi við atvinnulífið er mjög mikilvægt atriði, sem ekki er leyst. Það alvarlegasta eru kannski 4,5% vextirnir, þar sem fólkið er hlunnfarið um helming eða meira.

Þannig að ég er að benda á bæði oftryggingu og vantryggingu, kosti og galla og menn eru ekkert að leysa þetta. Það er bara gripið í, eitthvert smotterí lagað og kannski gerist nákvæmlega það sama og 1999 að menn gera mistök. Ég veit það ekki. Hættan er sú þegar unnið er svona. Menn eiga að taka sér 3–4 mánuði með nefndasviði Alþingis og tryggingafræðingum og öðrum og gera þetta þannig að það sé þokkaleg trygging fyrir bótaþegana varðandi vextina, eingreiðsluna, kostnaðinn og endurhæfingu, miskabætur o.s.frv. (Forseti hringir.)