136. löggjafarþing — 115. fundur,  25. mars 2009.

ábyrgðarmenn.

125. mál
[16:04]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við göngum nú til atkvæða um frumvarp til laga um ábyrgðarmenn. Frumvarpið á sér langa forsögu og er full ástæða til að hrósa hv. 1. flutningsmanni Lúðvíki Bergvinssyni fyrir þrautseigjuna í þessu efni. Mér telst svo til að þetta sé níunda þingið sem hann hefur fyrir því að leggja þetta frumvarp fram. Það er fyrst nú sem sátt er orðin um það í þingsölum að mikilvægt sé að leggja af hið ósanngjarna og óréttláta ábyrgðarmannakerfi sem hér hefur viðgengist allt of lengi, kerfi sem stuðlað hefur að óábyrgum lánveitingum lánastofnana og kallað ótölulegar hörmungar yfir fjölda fólks.

Það er sérstakt hróssefni að loks skuli hafa náðst samstaða um að afnema þetta óréttláta kerfi. Þetta er til vitnis um gott starf þingsins sjálfs að leiða slík þjóðþrifamál til lykta án þess að til þess komi frumkvæði af hálfu ríkisstjórnar og ég vil hrósa sérstaklega hv. 1. flutningsmanni Lúðvíki Bergvinssyni aftur fyrir þrautseigjuna.