ábyrgðarmenn.
Frú forseti. Við ræðum frumvarp sem á að afnema þann ósið í íslensku fjármálakerfi sem viðgengist hefur í marga áratugi, þ.e. að láta einhvern annan en lántaka bera ábyrgð á láninu. Þetta hefur í fyrsta lagi stuðlað að miklu ábyrgðarleysi bæði hjá lánveitendum og lántökum en ekki síður hefur það valdið ótölulegum harmleikjum hjá fólki sem hefur borið ábyrgð á lánum. Ég er mjög hlynntur þessu máli og hef reyndar verið með á því frá upphafi.
Þetta frumvarp eykur ábyrgð og gagnsæi í viðskiptalífinu og það er mín sýn til framtíðar að það sé einmitt það sem við á hv. Alþingi þurfum að vinna að, að auka gagnsæi, sanngirni og réttlæti og heiðarleika í viðskiptum. Þetta er skref í þá átt og ég styð málið mjög eindregið.