136. löggjafarþing — 116. fundur,  25. mars 2009.

Bjargráðasjóður.

413. mál
[21:37]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Fl) (andsvar):

Herra forseti. Ég tók það fram áðan um lífeyrissjóðina að þar mætti breyta ýmsu varðandi stjórn, þá sérstaklega því að launþegarnir eiga náttúrlega að vera einir í stjórn en ekki atvinnurekendur (Gripið fram í.) vegna þess í fyrsta lagi að stéttarfélögin og launþegarnir eiga peningana í lífeyrissjóðunum en ekki atvinnurekendur. Síðan má breyta ýmsum reglum varðandi sjóðina á hinum mörgu sviðum. Sjúkrasjóðirnir eru þannig skipaðir að á fundum í stéttarfélögum er kosið í sjúkrasjóði eða það er a.m.k. svoleiðis í mínu gamla stéttarfélagi. Það er lengi hægt að tala um það.

Varðandi Bjargráðasjóð hefur hann oft og tíðum hjálpað bændum þegar eitthvað óvænt hefur komið upp á. Það hefur ekki þurft nema kal í túni eða eitthvað þess háttar til að valda bændum miklu tjóni og þeir hafa getað fengið styrki og bætur úr Bjargráðasjóði. Bjargráðasjóður og Lánasjóður landbúnaðarins, sem var og hét, eru svo algjörlega ósambærilegir sjóðir.

Það er skrýtið þegar menn ráðast gegn öllu sjóðakerfi þó að nú um stundir, eftir 18 ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins, sé Atvinnuleysistryggingasjóður tómur. Hv. þingmaður minntist á að ekki væri allt þeim að kenna en það er búið að borga í þennan sjóð til margra ára, Atvinnuleysistryggingasjóð, og síðan er hann að verða tómur núna út af atvinnuástandinu í þjóðfélaginu og út af því efnahagshruni sem sjálfstæðismenn hafa borið stærsta ábyrgð á síðustu 18 árin. Þeir eru búnir að fara illa að ráði sínu hvað þessi mál varðar.