136. löggjafarþing — 116. fundur,  25. mars 2009.

Bjargráðasjóður.

413. mál
[21:39]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Þessi umræða er komin dálítið út um víðan völl og ég sé að hv. frjálslyndir þingmenn eru byrjaðir með tugguna hjá vinstri grænum um 18 ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins. Þetta er farið að verða hjá hv. þingmanni bæði kvótinn og 18 ára valdaseta Sjálfstæðisflokksins. (GMJ: Ég hef ekki minnst á kvótann.) Nei, ég sagði að kvótinn væri farinn að víkja fyrir 18 ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins.

Hv. þingmaður nefndi lífeyrissjóðina, vandamálið með þá er t.d. að sjóðfélagarnir hafa ekki beina aðild að kosningu stjórnar. (GMJ: Það er rétt.) Ég hef lagt það til á Alþingi nokkrum sinnum að skilgreint verði í lögum að lífeyrissjóðir séu eign sjóðfélaga. Það var kolfellt, mjög fagurrauð taflan. Ég hef líka lagt til á Alþingi að sjóðfélagar kysu stjórn beint. Það mátti ekki heldur, það var líka kolrauð tafla. Kannski hefur eitthvað breyst núna í kjölfar kreppunnar og kannski vilja menn fá meiri ábyrgð stjórnar lífeyrissjóðanna gagnvart sjóðfélögum með því að heimila beina kosningu. Það getur vel verið að nýtt þing sem hefur fengið endurnýjað umboð taki sér tak og skoði þessa sjóði alla, hvort þörf sé á þeim því að það stendur nefnilega í greinargerð með frumvarpi að það hafi verið rætt rækilega um þann kost að leggja sjóðinn niður og færa almenna deild hans undir Viðlagasjóð. Sá sjóður gæti tekið við hlutverkinu.

Þetta er allt til skoðunar, allt er mögulegt og ég held að þessi sjóður sé algjörlega óþarfur af því að við erum með viðlagatryggingu og við erum með önnur tryggingafélög sem gætu tekið við restinni.