136. löggjafarþing — 116. fundur,  25. mars 2009.

rannsóknarstofnun um utanríkis- og öryggismál.

20. mál
[22:31]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um rannsóknarstofnun um utanríkis- og öryggismál frá meiri hluta utanríkismálanefndar.

Í tillögu þessari er lagt til að fela ríkisstjórn Íslands að setja á stofn rannsóknarstofnun um utanríkis- og öryggismál. Það er m.a. gert í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa á alþjóðlegu umhverfi Íslands, eins og það er kallað, og stöðu Íslands í umheiminum á undanförnum tveimur áratugum. Þau áhrif eru óumdeild, hrun Sovétríkjanna, brotthvarf hersins og aðrar þær breytingar sem hafa átt sér stað, svo sem aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu og Schengen-svæðinu.

Víða erlendis, þar með talið annars staðar á Norðurlöndum, starfa rannsóknarstofnanir sem sérhæfa sig í alþjóðamálum og þróun þeirra. Hérlendis starfaði öryggismálanefnd á árunum 1978–1991. Við Háskóla Íslands starfar Alþjóðamálastofnun sem sett var á laggirnar árið 1990 og hefur hún unnið ágætt starf.

Þá hefur þverfaglegur starfshópur um áhættumat fyrir Ísland nýlokið störfum. Sjálfstæð rannsóknarstofnun í utanríkis- og öryggismálum getur m.a. haft hliðsjón af störfum öryggismálanefndar og áhættumatshópsins.

Meiri hluti utanríkismálanefndar telur að tengsl Íslands við alþjóðasamfélagið hafi sjaldan verið jafnmikilvæg. Einn af lykilþáttum uppbyggingar eftir efnahagshrunið hérlendis er að endurvinna traust á alþjóðavettvangi og eiga náið samstarf við vinaþjóðir. Meiri hlutinn tekur því undir efni tillögunnar og leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Tillögugreinin orðist svo:

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórn Íslands að kanna grundvöll þess að setja á stofn sjálfstætt rannsóknarsetur á sviði utanríkis- og öryggismála.

Undir þetta nefndarálit rita auk þeirrar sem hér stendur hv. þingmenn Árni Þór Sigurðsson, Siv Friðleifsdóttir, Valgerður Sverrisdóttir, Kristinn H. Gunnarsson og Lúðvík Bergvinsson.