stjórnarsamstarf eftir kosningar.
Virðulegur forseti. Nú hafa stjórnmálaflokkarnir haldið landsfundi sína og línur eru farnar að skýrast. Ljóst er að stjórnarflokkarnir eru svolítið eins og ástfangnir unglingar á vorin. Það er rafmagnað samband má segja og stjórnarflokkarnir virðast ekki alveg sjá þann vanda sem við þjóðinni blasir. Alla vega höfum við framsóknarmenn, að okkar mati, ekki fengið nógu góðar umræður um efnahagstillögur okkar (Gripið fram í.) og hæstv. forsætisráðherra hefur m.a. skotið niður tillögu okkar um 20% leiðréttingu til heimilanna. (Gripið fram í.)
Ég vil því spyrja vegna þess að hæstv. sjávarútvegsráðherra og formaður vinstri grænna hefur sagt að Vinstri hreyfingin – grænt framboð vilji stjórnarsamstarf við Samfylkinguna eftir næstu kosningar og hæstv. forsætisráðherra, formaður Samfylkingarinnar, segir einnig að hún geti alveg séð þetta samstarf fyrir sér áfram ef þessir tveir flokkar fá meiri hluta.
Þannig að ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé nú ekki bara heiðarlegt og eðlilegt í ljósi þess að allir vilja nú hafa allt uppi á borðinu að stjórnarflokkarnir núverandi, sem segjast ætla að vinna saman eftir kosningar fái þeir hreinan meiri hluta, eigi að sýna okkur stjórnarsáttmálann. Á ekki að sýna þjóðinni hvort hér verða almennar skattahækkanir? Hvað á að gera í atvinnumálum þjóðarinnar? Hvar á að skera niður? Hvernig á að lenda ESB-málinu?
Mér finnst, virðulegur forseti, eðlilegra að þeir sem segjast ætla að starfa saman eftir kosningar fái þeir til þess meiri hluta svari þessu frekar en að svara engu og heimta svör frá öðrum. Það hafa auðvitað allir flokkar sína skoðun á þessum vandamálum. En mér finnst eðlilegt þegar gefið er svona sterkt í skyn að það eigi að vera hrein vinstri (Forseti hringir.) stjórn eftir kosningar að menn eigi að segja hvað í því felst.