136. löggjafarþing — 117. fundur,  30. mars 2009.

gjaldþrotaskipti o.fl.

281. mál
[16:16]
Horfa

Sigurður Kári Kristjánsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það er frumskylda þeirrar ríkisstjórnar sem nú starfar í landinu að beina öllum sínum kröftum í að koma hjólum atvinnulífsins í gang og verja heimilin í landinu. Því miður hefur sú ríkisstjórn sem nú starfar ekki sett alla krafta sína í þessi verkefni heldur hefur hún beint athyglinni í aðrar áttir. (Gripið fram í.)

Það mál sem við greiðum atkvæði um nú, greiðsluaðlögun, var samið að frumkvæði Sjálfstæðisflokksins í tíð hv. þm. Björns Bjarnasonar í dómsmálaráðuneytinu, samið af réttarfarsnefnd og er eitt af þeim málum sem mun koma heimilunum í landinu vel. Slík mál mættu vera fleiri frá ríkisstjórninni og það væri óskandi að svo væri (Forseti hringir.) en við sjálfstæðismenn styðjum þetta góða frumvarp og munum greiða því atkvæði okkar.