gjaldþrotaskipti o.fl.
Virðulegi forseti. Það eru mikil tímamót að við skulum nú vera að ganga frá þessu frumvarpi til samþykktar. Það eru komin hátt í 20 ár síðan barátta þáv. hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur, hófst fyrir því að greiðsluaðlögun yrði komið í íslensk lög. Það hefur tekið langan tíma að koma þessu þjóðþrifamáli í gegn en hefur nú tekist.
Ég vil að síðustu þakka góða samvinnu sem tekist hefur um málið á vettvangi allsherjarnefndar sem er til fyrirmyndar og ég bind miklar vonir við að þetta úrræði komi fjölda fólks til hjálpar nú þegar harðnar á dalnum í efnahagslífinu. Það hefði verið betra ef menn hefðu drattast til að koma þessu úrræði í lög þegar fyrst voru flutt um það frumvörp, 1994 og 1995, frekar en að bíða eins lengi og raun ber vitni.