136. löggjafarþing — 118. fundur,  31. mars 2009.

tilhögun þingfundar.

[14:04]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ný þingskapalög eru í gildi og þau eru góð og gild og voru mikilvægt framfaraspor fyrir þingið, til að gera það betra og skilvirkara og allt það. Ég fagna þeim, ágætt að vinna undir þeim en engu að síður er að mínu mati óljóst hvort við erum að greiða atkvæði um að vera með þingstörfin fram til miðnættis eða fram yfir miðnætti. Við munum að sjálfsögðu greiða atkvæði með því að vera hér fram að miðnætti. Það er eðlilegt, við munum fara yfir málin enda margt mikilvægt að ræða en ég vil fá á hreint hvort við förum fram yfir miðnætti með þessari atkvæðagreiðslu.