136. löggjafarþing — 122. fundur,  1. apr. 2009.

opinn fundur í fjárlaganefnd – afgreiðsla sérnefndar á frumvarpi um stjórnarskipunarlög.

[13:51]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Herra forseti. Ég get ekki látið hjá líða að bregðast við ummælum sem féllu af hálfu hv. þm. Kristjáns Þórs Júlíussonar hér áðan þegar hann ræddi um skattamál og hélt því fram að boðskapur fjármálaráðherra, hæstv. formanns Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, væri bersýnilega að hækka skatta á aldraða, öryrkja og ungt fólk.

Nú er það auðvitað svo að sú staða sem blasir við í efnahagsmálum eftir átján ára stjórn Sjálfstæðisflokksins í þeim málaflokki er með þeim hætti að grípa verður til margháttaðra aðgerða til þess að bregðast þar við. Við höfum sagt skýrt af okkar hálfu að við horfumst í augu við þá döpru staðreynd að það þarf bæði að fara í hagræðingu og samdrátt í ríkisútgjöldum en það þarf líka að leita leiða til þess að auka tekjur ríkissjóðs með sanngjörnum hætti.

Þegar höfð er í huga reynslan af Sjálfstæðisflokknum í skattabreytingarmálum á undanförnum árum þá vitum við hvernig hann stendur að þeim. Ef skattar eru lækkaðir þá er það á þá sem mest hafa fyrir en skattar eru hækkaðir á lágtekjufólki. Formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir H. Haarde, sagði hér laust fyrir áramót, þegar hann var í embætti forsætisráðherra og líka formaður í Sjálfstæðisflokknum, að ekki væri hægt að útiloka skattahækkanir. Hvað meinti hann með því? Hvað meinti Sjálfstæðisflokkurinn með því? Á hverjum átti þá að hækka skattana? Gamla fólkinu? Unga fólkinu, öryrkjana eða hvað? Getur Sjálfstæðisflokkurinn svarað því? Nú kemur hann hér eins og hvítþveginn engill og lætur eins og það hafi aldrei hvarflað að honum að auka þyrfti tekjur ríkissjóðs. (Gripið fram í: Hann er farinn …) — Er hann ekki hér? Nei, hann er farinn. Og þá getur Sjálfstæðisflokkurinn skipt um stefnu.

Við höfum sagt það af okkar hálfu í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði að við teljum mikilvægt að skattbyrðinni sé dreift með réttlátum hætti og skattkerfið notað markvisst til tekjujöfnunar. Það er stefna okkar. Hún var mörkuð á landsfundi okkar. Við höfum sagt þjóðinni frá (Forseti hringir.) því hverjar áherslur okkar eru í þessu efni.