136. löggjafarþing — 122. fundur,  1. apr. 2009.

opinn fundur í fjárlaganefnd – afgreiðsla sérnefndar á frumvarpi um stjórnarskipunarlög.

[14:00]
Horfa

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Virðulegi forseti. Það er ástæða til að ræða fundinn í morgun. Þetta var um margt prýðilegur fundur og ágæt nýbreytni í störfum Alþingis. Ástæða er til að þakka ráðherra og ráðuneytismönnum fyrir prýðilegar upplýsingar og býsna greinargott yfirlit yfir þá flóknu stöðu sem uppi er nú af því að það er ekki allt fyrirsjáanlegt í henni en þeir fóru að mínu mati mjög vel yfir hana. Annar þáttur umræðunnar á þessum fundi sem ekki hefur verið ræddur í þingsalnum í dag heldur hafa menn þrasað um hvort og með hvaða hætti hækka eigi skatta, voru atvinnumálin og hvernig megi efla atvinnustigið og auka framleiðsluna í landinu. Þetta ræddu nokkuð margir þingmenn á nefndarfundinum í morgun og ráðherrann brást prýðilega við því í lokin með því að vísa á helstu sprotana þar, ferðaþjónustu og ýmislegt annað. (Gripið fram í.) Þá gerðist sá ánægjulegi atburður í iðnaðarnefnd í beinu framhaldi af þessum fundi að þar var afgreitt frumvarp iðnaðarráðherra um fjárfestingarsamning vegna álversins í Helguvík. Gangi þau áform eftir má búast við að á þriðja þúsund Íslendinga verði að störfum í kringum þá framkvæmd á haustdögum, bæði í kringum þjónustu og mannvirkjagerð ýmiss konar. Þetta eru áfangar sem við eigum að fagna og taka utan um, styðja við bakið á og ganga úr skugga um að verði að veruleika og ná samstöðu um.

Margt annað jákvætt gæti gengið eftir með sama hætti og ráðherra nefndi sem varðar gagnaver og ýmsa aðra uppbyggingu. Þá upplýsti ráðherrann einnig að viðræður standa yfir á milli ráðuneyta og grænu stóriðjunnar — garðyrkjunnar og ylræktarinnar í landinu — um að lækka rafmagn til ylræktar og grænnar stóriðju á Íslandi. Það er mikið fagnaðarefni af því að það er vaxtarsproti sem á að hlúa að og taka utan um. Við eigum að einblína á það sem hægt er að gera og verið er að gera með jákvæðum hætti þannig að strax á þessu ári megi fjölga störfum á Íslandi svo þúsundum skiptir.