afgreiðsla sérnefndar á frumvarpi um stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Mér finnst það í sjálfu sér alvarlegt mál þegar svona kemur upp. Ég hvet hv. þingmenn sem hófu þessa umræðu, Arnbjörgu Sveinsdóttur og Valgerði Sverrisdóttur, til að reyna að leysa þetta sín á milli þannig að menn fari ekki inn í sumarið með þennan misskilning. Það er alltaf leiðinlegt fyrir hv. þingmenn að standa frammi fyrir því að hafa misskilið hver annan í málum eins og þessu. Ég þekki báða hv. þingmenn, virðulegi forseti, af góðu einu, hef starfað með þeim hér í a.m.k. tvö ár og ég er þess fullviss að báðir hv. þingmenn munu geta leyst þetta þannig að við lítum björtum augum til sumarsins því að ekki vil ég horfa fram á það, virðulegi forseti, að bera þetta á bakinu (Forseti hringir.) inn í sumarið og páskafríið.