verðbætur á lán.
Frú forseti. Ætli menn að setja fram tímasetta áætlun um afnám verðtryggingar hlýtur að fylgja þeirri tímasetningu afskaplega róttæk breyting á fyrirkomulagi peningamála þegar við blasir að vandinn er ekki verðtryggingin sjálf heldur það fyrirkomulag sem hún er sett inn í til að verja í raun bæði skuldara og þá sem veita lánin fyrir ójafnvægi og verðbólguskotum.
Stóra spurningin er hvernig við nálgumst jafnvægi lágra vaxta, stöðugs gengis og afnáms verðtryggingar. Þá þurfum við að ræða um raunhæfar leiðir til að ná því markmiði. Það er ekki hægt að slengja því fram að hægt sé að afnema verðtrygginguna og þá sé vandinn frá. Því fer bara einfaldlega víðs fjarri, því miður.
Óstöðugleiki og fyrirkomulag peningamála eru vandinn. Segi menn það af fullri alvöru korteri fyrir kosningar að þeir ætli að setja fram tímasettar áætlanir um afnám verðtryggingar hljóta þeir að segja B fyrst þeir sögðu A og skýra hvernig þeir ætla að breyta fyrirkomulagi peningamála. Það er bara svoleiðis. Þetta eru staðreyndir sem menn komast ekkert hjá.
Vonandi erum við að lifa síðasta ójafnvægis- og verðbótaskeiðið. Ég held að það sé ekki spurning um hvort horfið verði frá núverandi fyrirkomulagi verðtryggingar og peningamála heldur hvernig. Það hlýtur að vera eitt af stóru verkefnum komandi kosninga og næstu missira hvernig stjórnvöld ætla að ná sátt um fyrirkomulag peningamála og þar með verðtryggingar og annarra grundvallarþátta í fyrirkomulaginu öllu.
Þegar krónan hrundi í febrúar, mars í fyrra um 30% á einum degi, daginn fyrir skírdag, þegar við vorum að ganga inn í páskahléið þá hófst það verðbólguskeið og sá hrunadans sem nú stendur yfir og nú sýpur íslensk alþýða seyðið af þeim óstöðugleika sem er innbyggður í fyrirkomulag okkar og hagstjórn síðustu 10–15 ára. Við hljótum öll að læra af reynslunni og spyrja okkur: Hvernig setjum við fram tímasetta áætlun (Forseti hringir.) um afnám verðtryggingar? En um róttæka breytingu á stjórnun peningamála?