niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.
Virðulegi forseti. Ég er ekki sammála hv. þingmanni um að þetta sé alveg ótrúlega flókið. Ef við skoðum grannt það mál sem liggur fyrir, og þingheimur virðist mestmegnis vera sammála um, er einmitt verið að feta þá braut að reyna að lækka niðurgreiðslukostnaðinn með því að setja tímabundið aukna fjármuni til þess að leita orkusparandi leiða til húshitunar. Sú leið sem núna er verið að fara er að leggja af stað í nýjan leiðangur, þ.e. að lækka kostnaðinn með orkusparandi aðgerðum. Ég tel það vera farsæla leið, virðulegi forseti, í þeirri stöðu sem við erum í í dag og þess vegna styð ég hana. Ég tel að nefndin sé algjörlega einróma í málinu eftir að hafa fjallað um það nokkuð ítarlega bæði hér í þingsölum og innan nefndarinnar.
Við teljum þetta vera rétt skref. Það hefur einnig komið fram í máli fjölmargra þingmanna við umræðuna að verið er að stíga heillaskref og þetta er næsta skref. Núna er búið að eyða miklum krafti í að hitaveituvæða þau heimili sem hægt er að hitaveituvæða. Nú er komið að því skrefi að finna orkusparandi leiðir fyrir það íbúðarhúsnæði og þau heimili sem eru á allra köldustu svæðum og eru fjærst sprungunni sem liggur í gegnum landið þar sem hitann er að finna og eru á þessum svokölluðu köldu svæðum. Þetta er sá leiðangur, virðulegi forseti, sem náðst hefur samstaða um og ég tel vera heillavænlega og eigi að skila okkur orkusparnaði og þar af leiðandi lækkuðum niðurgreiðslum af hálfu hins opinbera og lækkuðum hitaveitukostnaði hjá íbúunum sjálfum.