136. löggjafarþing — 124. fundur,  2. apr. 2009.

tilhögun þingfundar.

[11:31]
Horfa

Forseti (Guðbjartur Hannesson):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að þingfundir geti staðið lengur í dag, þ.e. þar til umræðum um dagskrármálin er lokið. Er óskað atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? Svo er ekki og skoðast hún samþykkt.