136. löggjafarþing — 125. fundur,  3. apr. 2009.

áhrif gjaldeyrishafta á samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja.

[13:44]
Horfa

Jón Bjarnason (Vg):

Herra forseti. Staða þjóðarbúsins er nú með þeim hætti að við verðum að leita allra leiða til að afla gjaldeyris. Við verðum að efla útflutningsgreinarnar sem koma með gjaldeyri inn í landið. Við þurfum líka að leita allra leiða til að spara innkaup og notkun á gjaldeyri og til að styrkja innviði íslensks samfélags hvað atvinnu varðar.

Halli á ríkissjóði upp á 170 milljarða kr. á þessu ári, arfleifð ríkisstjórnarstefnu Sjálfstæðisflokksins, þessarar nýfrjálshyggju sem hrundi svo gjörsamlega í haust, verður okkur þung. Skuldir íslenska þjóðarbúsins erlendis eru hátt á annað þúsund milljarða kr. Þetta verðum við að brúa og þess vegna er afar mikilvægt að allir leggist á eitt og útflytjendur sem flytja út vörur og þeir sem eiga í gjaldeyrisviðskiptum finni til þeirrar sómatilfinningar og samstöðu að skila gjaldeyri inn í landið. Það er engin óskastaða að vera hér með gjaldeyrishöft eins og nú er en þau voru lögð á í haust vegna þeirrar gjaldþrota stjórnarstefnu sem féll þá á herðar íslensku þjóðarinnar.

Allir verða að koma hér að og það að stöðugt sé verið að stoppa í götin og setja ný lög til að komast hjá undanskotum í að skila gjaldeyri til landsins er óásættanlegt. Það hljóta allir að sjá að forsenda þess að við vinnum okkur fljótt og örugglega út úr vandanum, sem við stöndum frammi fyrir, er að við verðum öll að leggja saman. Gjaldeyrisskil inn í landið (Forseti hringir.) verða að vera tryggð og ekki er hægt ætlast til þess að Alþingi þurfi stöðugt að setja ný og ný lög til að stöðva (Forseti hringir.) slíkan ósóma, herra forseti.