áhrif gjaldeyrishafta á samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja.
Herra forseti. Sú haftastefna sem við búum nú við er orsök og afleiðing af stefnu Sjálfstæðisflokksins í gegnum tíðina, síðustu 18 árin. Haftastefna er ekki bara núna í fjármálum, við höfum búið við haftastefnu í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum í langan tíma, mörg ár. Frelsi til athafna og gjörða sem Sjálfstæðisflokkur skreytir sig með á hátíðisdögum er ekki meiri en svo að við búum við þessi höft í bæði sjávarútvegi og landbúnaði. Sjálfstæðismenn hafa verið á móti því að selja allan fisk í gegnum fiskmarkaði og hafa ekki viljað láta markaðslögmálið ráða.
Einkenni Sjálfstæðisflokksins virðist vera að vilja hafa höft á nánast öllum hlutum og ákveða hverjir fá og hverjir ekki. Þetta er árangurinn af nýfrjálshyggju Sjálfstæðisflokksins. Hann ber mikla ábyrgð á málunum í dag.
Það sorglega í þessari umræðu er að sömu mennirnir og bröskuðu með veiðiheimildir, leigðu, seldu og veðsettu veiðiheimildir og fóru með peninga út úr þjóðfélaginu, út á gjafakvótann, eru núna að braska með gjaldeyrinn sem þeir fá fyrir fiskinn upp úr sjó, selja fiskinn út og braska með gjaldeyri.
Við þurfum bersýnilega að vanda okkur en til að við komumst út úr þessum vanda þurfum við að afla meiri tekna, veiða meiri fisk, nýta meira og betur orkuna í iðrum jarðar, skapa okkur gjaldeyristekjur og búa fólki atvinnu. Þetta er það nauðsynlegasta sem við þurfum að leggja áherslu á í dag.