136. löggjafarþing — 125. fundur,  3. apr. 2009.

áhrif gjaldeyrishafta á samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja.

[14:07]
Horfa

viðskiptaráðherra (Gylfi Magnússon):

Virðulegi forseti. Því fer fjarri að ríkisstjórnin sé hætt að reyna að þoka þessu máli í rétta átt. Þvert á móti er vinna í gangi, bæði á vegum ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans og að sjálfsögðu í samráði við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur hins vegar mér vitanlega ekki sjálfur komið með neinar tillögur. Raunar verð ég að viðurkenna að mér fannst fulltrúi hans vera helst til rólegur með þessi höft þegar hann fór hér um landið fyrir nokkrum vikum og hafði ekki, að mínu mati, réttmætar áhyggjur af því hversu lengi þessi höft gætu verið. Hvað sem því líður verðum við í þessari umræðu að átta okkur á því að höftin eru einungis ein birtingarmynd þeirra vandræða sem við eigum almennt í í peninga-, gengis- og verðlagsmálum okkar. Við verðum að reyna að leysa þau. Og auðvitað er verið að því með ýmsum hætti, m.a. í þeirri aðgerð sem byggir á áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og samningnum við hann en einnig í ýmsum öðrum aðgerðum.

Ég tel hins vegar að hvað svo sem slíkar skammtímaráðstafanir áhrærir þurfum við einnig að finna einhverja framtíðarsýn sem gerir okkur kleift að koma í veg fyrir að þetta verði viðvarandi vandamál, hvort sem við þurfum að leysa það með höftum eða ekki. Hvort evran er sú framtíðarsýn á auðvitað eftir að koma í ljós en hún hefur bæði kosti og galla sem framtíðarlausn sem tímans vegna er ekki hægt að rekja hérna.

Ég held að það sé samdóma álit allra sem hér hafa talað að menn vilja ekki sjá þessi höft til langframa. Það hlýtur því að vera sameiginlegt markmið okkar að breyta þannig stöðu efnahagsmála á Íslandi að við þurfum ekki lengur (Forseti hringir.) á höftum að halda.