orð þingmanns í utandagskrárumræðu – umræða um dagskrármál – fundur í umhverfisnefnd.
Virðulegi forseti. Þessi umræða dregur náttúrlega fram það sem er augljóst, það er orðið algjört uppnám hér á þinginu. Stjórnleysið er algjört. Að hlusta hér á hv. þm. Árna Mathiesen lýsa því hvernig menn eltast við að reyna að halda nefndarfund í hv. umhverfisnefnd er náttúrlega alveg ótrúlegt. Þetta er ekki eina dæmið, meiri hlutanum tókst einhvern veginn að klúðra breytingum á lyfjalögum þrátt fyrir að við sjálfstæðismenn í stjórnarandstöðu höfum reynt að halda meiri hlutanum við efnið hvað þetta varðar. Ég er afskaplega sammála því sem hér kom fram, enda ekki hægt annað, þar sem hv. þm. Eygló Harðardóttur las upp úr þingsköpunum. Það var alveg skýrt, enda frekar augljóst að ef formaður er ekki til staðar stýrir varaformaður nefndarfundi.
Þetta er því miður talandi dæmi um hvað er að gerast í þinginu, störfin eru í algjöru uppnámi og hér er allt gert til að koma á ófriði. Menn (Forseti hringir.) leggja eins mikið á sig og hægt er, að manni sýnist, til að hafa ekki samráð við (Forseti hringir.) stjórnarandstöðuna um framkvæmd mála (Forseti hringir.) og afleiðingin er sú sem hér er lýst.