136. löggjafarþing — 125. fundur,  3. apr. 2009.

stjórnarskipunarlög.

385. mál
[17:08]
Horfa

Lúðvík Bergvinsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér fannst einmitt í ræðu hv. þingmanns að hann gerði athugasemdir við 1. gr., eins og fram kom, að það byggði á því að það skapaði óvissu en um leið viðurkennir hv. þingmaður að nú sé óvissa, að það hafi verið uppi deilur og að þær verði áfram.

Mig langar líka að nefna að einn lagaprófessor sem kom til fundar við okkur, Eiríkur Tómasson, taldi að þetta mundi frekar skýra stöðu eða skýra réttindi útgerðarmanna þegar kemur að auðlindinni, hann taldi það frekar falla í þann farveg. En þrátt fyrir að hv. þingmaður hafi í ræðu sinni gert kröfu að frumvarpshöfundar og þeir sem þetta mál flytja hefðu svör við öllu sem upp kynni að koma og það yrði að gera þá kröfu til þeirra ákvæða sem hér er verið að leggja til að yrðu sett í stjórnarskrá að aldrei kæmi upp nokkur vafi — hann hældi mjög mannréttindakafla og þeirri vinnu sem fram fór við setningu þess kafla — þá er dálítið athyglisvert að hv. þingmaður viðurkennir að það sé alveg ljóst, sama hvað við gerum, það kunni alltaf að koma upp spurningar. Það kunni alltaf að koma upp deilur og hlutirnir geti verið óljósir og lagasverðið bjarta er ekki alltaf alveg ljóst þegar slíkar deilur koma upp.

Mér fannst margt ágætt í ræðu hv. þingmanns en þessi tvö atriði, grundvallarsjónarmið mátti þó greina í ræðunni. Ég verð að segja alveg eins og er að honum hefur ekki gengið vel að takast á við að reyna að útskýra að það sé engin óvissa eða hvað þá að hægt sé að setja ákvæði í stjórnarskrá sem ekki kunni að spretta deilur út af.