stjórnarskipunarlög.
Herra forseti. Ég vil ítreka það sem hefur komið nokkrum sinnum fram áður að hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra hafa verið hér í húsinu meira og minna í allan dag.
Þegar kallað var eftir viðveru hæstv. fjármálaráðherra í gærkvöldi var hann á opnum borgarafundi á Akureyri (Gripið fram í.) og átti ekki gott með að mæta hér. (Gripið fram í.) Hann átti ekki gott með það, herra forseti, að mæta hér í þingsal eins og óskað var eftir ellegar hefði hann eflaust gert það.
Ég vil vekja athygli hv. þingmanna Sjálfstæðisflokksins á því að umræddur sjónvarpsþáttur byrjar ekki fyrr en eftir tvo eða þrjá tíma (Gripið fram í.) þannig að þeim er óhætt að halda áfram einræðum sínum hér þangað til í það minnsta.