136. löggjafarþing — 126. fundur,  4. apr. 2009.

fundur í umhverfisnefnd -- frumvarp um stjórnarskipunarlög -- röð mála á dagskrá.

[10:34]
Horfa

Forseti (Þuríður Backman):

Forseti vill upplýsa hvað varðar athugasemd hv. þm. Árna Mathiesens um beiðni um fund í umhverfisnefnd að forseti þingsins hefur rætt þá beiðni við formann umhverfisnefndar þannig að þeirri beiðni er komið á framfæri.