136. löggjafarþing — 126. fundur, 4. apr. 2009.
framkvæmd fjárlaga og samskipti við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Nú fer fram utandagskrárumræða um framkvæmd fjárlaga og samskipti við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Málshefjandi er hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson, hæstv. fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon verður til andsvara.
Umræðan fer fram samkvæmt 3. mgr. 50. gr. þingskapa. Samið hefur verið um að umræðan standi í u.þ.b. 45 mínútur. Málshefjandi og ráðherra hafa sjö mínútur til framsögu en aðrir ræðumenn 3 mínútur.