svör ráðherra í utandagskrárumræðu.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Sturlu Böðvarssyni og endurtek, bara svo menn hafi það alveg á hreinu um hvað hér var spurt.
1. Hvernig er framvinda ríkisreksturs árið 2009 miðað við fjárlög ársins? (SVÓ: Er þetta efnisleg umræða, forseti?) Því var ekki svarað. Einu upplýsingarnar sem hafa fengist eru frá heilbrigðisnefnd en (Gripið fram í.) það eru ekki þær upplýsingar … Virðulegi forseti. Ég er að fara hér yfir hverju var ekki svarað og taka undir ósk hv. þm. Sturlu Böðvarssonar. (Gripið fram í: Um endurtekningu?)
2. Hvernig hyggst ríkisstjórnin mæta þeim frávikum sem leiða til meiri samdráttar í tekjum en ráð var fyrir gert og vegna útgjalda umfram fjárlög?
3. Hvernig eru áætlanir sem ríkisstjórnin lagði fyrir AGS um fjárlagagerð þessa árs og undirbúningur fyrir það næsta?
4. Hvers vegna fær Alþingi ekki sömu upplýsingar og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn?
5. Og nú hefur fjármálaráðherra upplýst að farið verði bæði í niðurskurð og skattahækkanir árið 2010 sem nemur 35–55 milljörðum — hvar á niðurskurðurinn að koma fram og hvar munu skattar hækka? (Forseti hringir.)
6. Hvað á mikið að koma fram í hækkuðum sköttum og hversu mikið í niðurskurði? (Forseti hringir.)
Virðulegi forseti. Ég tek undir þá ósk að forseti beiti sér fyrir því að þessum spurningum verði svarað.