136. löggjafarþing — 126. fundur,  4. apr. 2009.

svör ráðherra í utandagskrárumræðu.

[11:55]
Horfa

Steinunn Valdís Óskarsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég verð að taka undir með hv. þm. Álfheiði Ingadóttur varðandi síðustu orð hennar. Ég held að frú forseti verði að fara yfir þingsköpin með hv. þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. Maður hefði kannski haldið fyrir fram að þeir þekktu þingsköpin en ef marka má það sem farið hefur fram hér í dag í umræðum og síðustu daga mætti ætla að menn kynnu ekki til verka. Ég held satt best að segja, frú forseti, að það væri býsna fróðlegt, athyglisvert og skemmtilegt fyrir þjóðina að fá að fylgjast með umræðum og framgöngu þingmanna Sjálfstæðisflokksins í þessu máli og hér í þingsölum Alþingis. Í raun og veru ætti það að vera í beinni útsendingu (Gripið fram í: Við erum það.) þannig að þjóðin sæi með eigin augum framgöngu hv. þingmanna Sjálfstæðisflokksins, hvernig þeir tregðast við hér dag eftir dag (Gripið fram í.) í krafti þingskapa Alþingis að taka (Gripið fram í.) hér út stjórnarskipunarlögin og það er bara vegna þess að þeir eru á móti því að afsala sér valdi. Valdaflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki hugsað sér (Forseti hringir.) að taka út stjórnarskipunarfrumvarpið (Forseti hringir.) vegna þess að það felur í sér vald til þjóðarinnar. (Gripið fram í: Þingmaðurinn er í beinni útsendingu ef hún veit það ekki.)