stjórnarskipunarlög.
Herra forseti. Pólitískur leikur, það er nú það. Ég minni á að ekki eru nema tvö ár liðin síðan fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins lagði ásamt þáverandi formanni Framsóknarflokksins fram frumvarp í þinginu með nákvæmlega sama orðalagi að því er varðar þjóðareignina. Þetta er ekki nýtt af nálinni. Ég geri ráð fyrir að það mál hafi verið flutt vegna þess að þingflokkurinn hafði samþykkt það, þar á meðal hv. þingmaður.
Ef það er einhver ágreiningur um útskýringu á því að þjóðin eigi náttúruauðlindirnar skulum við bara fara yfir það. Það tekur sjálfsagt einn eftirmiðdag að athuga það. Við kunnum öll íslensku og við vitum hvað við erum að tala um.
Um þá spurningu sem hann lagði fram um að ég hefði breytt um einhverja skoðun er það misskilningur. Ég vil að það sé staðfest í stjórnarskrá að þjóðin eigi þessa náttúruauðlind. Á sama tíma virðum við þann einkaeignarrétt sem hefur hugsanlega skapast. Ég ætla ekki að fara að gera ágreining út af því. Þess vegna skrifa ég upp á þetta mál.
Hv. þingmaður býður hér upp á sátt. Ég fagna því og endurtek það sem ég sagði áðan, ég lít svo á að málflutningur (Forseti hringir.) sjálfstæðismanna undanfarna sólarhringa sé í þátt átt. Við skulum láta á það (Forseti hringir.) reyna í stað þess að karpa hér (Forseti hringir.) og drepa kannski hugsanlega þetta annars ágæta mál að öðru leyti.