stjórnarskipunarlög.
Herra forseti. Mér heyrist að fulltrúar stjórnmálaflokka hér á Alþingi líti á þessa niðurstöðu bresku fjárlaganefndarinnar sem mikinn sigur fyrir málstað Íslendinga. Það er gríðarlegt ánægjuefni að niðurstaðan hafi verið þessi. Það veitir, að mínu mati, okkur Íslendingum mikið sóknarfæri til þess að gæta hagsmuna okkar og ná árangri í samningaviðræðum gagnvart Bretum. Miklir hagsmunir eru í húfi.
Eins og hér hefur verið bent á er Landsbankinn enn þá undir hryðjuverkalögum eins og hv. þm. Álfheiður Ingadóttir og hv. þm. Birgir Ármannsson bentu á. Af þeirri ástæðu ætla ég að ítreka þá ósk mína, sem kom fram áðan, við hæstv. forseta að málið verði tekið til vandaðrar umræðu strax á mánudaginn. Ég tel að þingið og ríkisstjórnin þurfi að eiga orðaskipti um þetta mál. Ég óska eftir því við (Forseti hringir.) hæstv. forseta að hann gefi okkur einhverjar vísbendingar um það hvernig hann hyggst (Forseti hringir.) bregðast við þeim óskum sem ég hef hér fært fram (Forseti hringir.) að lokinni þessari umræðu.