stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Það eru mýmörg framfaramál á dagskrá í dag en þau komast ekki í umræðuna vegna þess að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa ákveðið að tala langt mál og mikið um þetta.
Ég skildi hv. þingmann þannig að kannski mætti taka eitthvað út úr þessu og þá væri hægt að ná sátt og ljúka málinu þannig að aðferðafræðin er þá ekki verri en það, a.m.k. að eins og málið lítur út með smávægilegum breytingum sé ásættanlegt að breyta stjórnarskránni. Ég spurði hv. þingmann sérstaklega um tvö ákvæði þessa frumvarps og mér skildist að ekki væri heldur efnisleg andstaða við þau. En hv. þingmaður hefur gagnrýnt aðferðafræðina fyrst og fremst, líkt og fleiri þingmenn hafa gert í umræðunni, og það að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki komið að málinu. (Gripið fram í.)
Er þá skýringa á allri þessari umræðu og öllu sem hér hefur farið fram að leita í því að Sjálfstæðisflokkurinn er í fýlu? Eru hv. þingmenn flokksins í fýlu yfir því að þeir hafi ekki haft nægan aðgang að undirbúningi þessa máls og það réttlæti alla þá umræðu sem hér fer fram, að mikilvæg mál sem þeir eru sjálfir að óska eftir að komist á dagskrá koma ekki á dagskrá? Er það réttlætingin fyrir því að fyrsta birtingarmynd Sjálfstæðisflokksins eftir að nýr formaður hefur verið kjörinn sé sú að flokkurinn hefur uppi málþóf til þess að berjast gegn því að náttúruauðlindir komist í þjóðareign og að almenningur fái aukinn rétt til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu? Er réttlætingin þá í því að Sjálfstæðisflokkurinn sé í fýlu sökum þess að hann fékk ekki næga aðkomu að undirbúningi málsins?