136. löggjafarþing — 126. fundur,  4. apr. 2009.

stjórnarskipunarlög.

385. mál
[15:21]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er rétt og ég bið hv. þm. Birki J. Jónsson afsökunar á því, þeir settu fram kosningadag 25. apríl og hann hefur orðið að veruleika. Þeir settu og fram að þing yrði rofið 12. mars. Það hefur ekki orðið að veruleika. (Gripið fram í.) Það hefur ekkert komið fram hjá ríkisstjórninni sem er í takt við efnahagsráðstafanir og hugmyndir Framsóknarflokksins. En stjórnlagaþingið er inni í þessu frumvarpi, það var skilyrði Framsóknarflokksins til þess að verja minnihlutaríkisstjórnina vantrausti og frá því geta framsóknarmenn ekki horfið. Það er einfaldlega svo, þeir settu það sem skilyrði að stjórnlagaþing yrði sett inn. Við því urðu Samfylkingin og Vinstri grænir, það er svo, og við það sitjum hér með í þessu frumvarpi, hæstv. forseti. Ég er enn þá þeirrar skoðunar að Framsóknarflokkurinn, þingflokkur Framsóknarflokksins hafi tekið stjórnarskrána í gíslingu til þess að skapa sér sérstöðu gagnvart ríkisstjórninni í því að verja (Forseti hringir.) hana vantrausti ef til slíks kæmi.