stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Það er alveg rétt skilið hjá hv. þingmanni, ég er sammála þeim sjónarmiðum að miðað við núverandi stjórnarskrá eigi ekki að ráðast í að gera efnislegar breytingar í miklum ágreiningi. Ef þingflokkur sjálfstæðismanna er andvígur tilteknum breytingum tel ég það mikinn ágreining miðað við samsetningu þessa þings. Ég tel því að menn eigi ekki að keyra fram breytingar í andstöðu við þann þingflokk miðað við það fyrirkomulag að það er þingið eitt sem breytir stjórnarskránni.
Öðru máli gegndi ef við værum hins vegar búin að gera þá breytingu að allar breytingar á stjórnarskránni sem samþykktar verða hér á þingi fari fyrir þjóðina að lokum. Þá finnst mér að ágreiningur geti vel átt sé stað um það mál vegna þess að úr þeim ágreiningi yrði þá leyst af þeim aðila sem einn er til þess bær, þ.e. af þjóðinni sjálfri.
Hvað varðar vægi atkvæða fylgir það sambandsríkjum að reynt er að hafa sem jafnast vægi atkvæða í annarri þingdeildinni, sem er yfirleitt sú mikilvægari, um landið allt en síðan eru kosnir fulltrúar úr einstökum sambandsríkjum inn í aðra þingdeild. Ég held að við ættum að huga að því að taka upp þannig fyrirkomulag. Þó er það svolítið huglægt mat hvað er jafnt vægi atkvæða. Við höfum t.d. sama vægi atkvæða á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og Kínverjar þó að íbúafjöldinn sé ólíkur. En við eigum að skilgreina þau mál sem eiga að vera úrlausnarefni íbúa á tilteknu svæði, hvort sem það er sveitarfélag eða hérað, og þar eiga þeir íbúar einfaldlega að ráða þeim málum til lykta og þar er jafnt vægi atkvæða hjá þeim, og aðrir íbúar sem eru búsettir utan þess svæðis eiga ekki að ráðskast með þau málefni.