136. löggjafarþing — 127. fundur,  6. apr. 2009.

námslán og atvinnuleysisbætur.

[11:06]
Horfa

Helga Sigrún Harðardóttir (F):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir skýr svör. Ég treysti menntamálaráðherra ágætlega til að stýra þessu verki en í þessu samhengi ber að nefna að það sama fólk og nýtur námslána er líklega eini hópurinn sem verður að fjármagna framfærslu sína á yfirdráttarlánum bankanna og þar með greiða stóran hluta þess litla sem skammtað er í vexti. Þess vegna vil ég spyrja hæstv. ráðherra um möguleika á því, úr því að bankarnir eru orðnir að stórum hluta í eigu ríkisins, hvort hann hafi áhuga á því og geti beitt sér fyrir því að Lánasjóður íslenskra námslána geti breytt kerfi sínu í þágu námsmanna eða að þeir fái notið betri kjara en nú þekkist varðandi fyrirframgreiðslur sem til eru komnar vegna eftirágreiddra lána. Ég spyr auðvitað hæstv. fjármálaráðherra um þetta því að hann er jú sá sem heldur utan um budduna.