stjórnarskipunarlög.
Hæstv. forseti. Það er greinilegt að það endurspeglast ekki bara í þessu frumvarpi til stjórnarskipunarlaga sú í rauninni lítilsvirðing sem menn sýna lýðræðislegri umræðu. Hér kom þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Arnbjörg Sveinsdóttir, og óskaði eftir því að þingfundi yrði frestað í stutta stund á meðan framboðsfundur sem nú er útvarpað og sjónvarpað stendur yfir á Ísafirði. Í rauninni er ekki nema eðlilegt að þingmenn og raunar þjóðin — þjóðin getur ekki horft á tvær dagskrár í einu, annars vegar það sem fram fer á þinginu og hins vegar það sem er að gerast á Ísafirði né heldur geta þingmenn horft á þann fund sem þar fer fram verandi hér í þingsalnum og í störfum þingsins. Þetta er svo sem í takt við allt annað og þau vinnubrögð sem eru viðhöfð á Alþingi og í rauninni þá lítilsvirðingu sem lýðræðinu er sýnd af þeirri minnihlutastjórn sem hér er við völd.
Hægt er að rekja þetta frekar því að eins og margoft hefur komið fram er það einsdæmi að ráðist sé í stjórnarskrárbreytingar með þeim hætti sem við upplifum hér þar sem ekkert samráð er haft við stærsta þingflokkinn þrátt fyrir að margsinnis hafi það komið fram í störfum nefndarinnar að menn hafi verið tilbúnir til að leysa þessi mál og ræða þau á þeim forsendum að ná fram einhverri sátt um þau en náttúrlega á þeim forsendum sem gerist í samningaviðræðum að menn nálgist hver annan. En eins og við var að búast var ekkert gert með það og það hefur verið alveg hreint með ólíkindum að sjá hvernig þetta mál hefur gengið fram.
Ég fór yfir frumvarp til stjórnarskipunarlaga sem áður hafði komið fram þar sem tekið er á 79. gr. laganna en það sem er kannski merkilegast ef maður les innganginn þá segir að í byrjun árs 2005 hafi forsætisráðherra skipað nefnd um endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins Íslands (stjórnarskrárnefnd). Í nefndina voru skipuð Birgir Ármannsson alþingismaður, Geir H. Haarde, þáverandi fjármálaráðherra, og Þorsteinn Pálsson, sendiherra og síðar ritstjóri, tilnefndir af Sjálfstæðisflokknum, Jón Kristjánsson, þáverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og Jónína Bjartmarz, alþingismaður og síðar umhverfisráðherra, tilnefnd af Framsóknarflokknum, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir alþingismaður og Össur Skarphéðinsson alþingismaður tilnefnd af Samfylkingunni. — Ekki hefur, hæstv. forseti, Sjálfstæðisflokkurinn svo sjaldan verið sakaður um það að virða ekki reglur lýðræðisins en þessir þingmenn voru skipaðir. — Steingrímur J. Sigfússon, sem hefur farið oftast fremstur í flokki þegar kemur að vinnubrögðum Alþingis, er tilnefndur af Vinstri hreyfingunni – grænu framboði og Guðjón Arnar Kristjánsson alþingismaður tilnefndur af Frjálslynda flokknum.
Með stjórnarskrárnefnd starfaði nefnd sérfræðinga, þau Eiríkur Tómasson prófessor, sem hefur sjaldan verið talinn einhver sérstakur aðdáandi Sjálfstæðisflokksins, Björg Thorarensen prófessor, sem minnihlutastjórnin reyndi að fá sem dómsmálaráðherra, og Gunnar Helgi Kristinsson, sem ekki getur heldur talist neinn sérstakur aðdáandi Sjálfstæðisflokksins, þó að mér finnist hann hafa verið hlutlægari í afstöðu sinni en Eiríkur Tómasson.
Ef við hins vegar skoðum það plagg sem liggur fyrir núna stendur hér, með leyfi forseta:
„Auk þess yrðu sett lög um skipan og verkefni stjórnlagaþings. Í kjölfar þessa“ — þó að það komi þeirri grein ekki beint við sem ég ræddi hér áðan — „skipaði forsætisráðherra ráðgjafarhóp ríkisstjórnarinnar …“
Í ráðgjafarhópnum voru Björg Thorarensen sem minnihlutastjórnin hafði leitast eftir að yrði dómsmálaráðherra. Þar var líka Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, og Gísli Tryggvason, yfirlýstur framsóknarmaður og sérstakur ráðgjafi Framsóknarflokksins.
Þetta var sem sagt ráðgjafarhópurinn sem þessi minnihlutastjórn skipaði til að fara yfir þessi mál, allt saman yfirlýst stuðningsfólk þessara stjórnarflokka á meðan í stjórnarskrárnefndinni, eins og ég lýsti hér áðan, voru ráðgjafar þar sem í rauninni er ekki hægt að segja að einn einasti aðili væri fulltrúi þáverandi stjórnarflokka. Þetta eru ólík vinnubrögð, hæstv. forseti, mjög ólík vinnubrögð sem þarna eru viðhöfð.
Þá kemur líka fram í þessu frumvarpi mjög mikill munur á þessum tillögum. Í frumvarpinu sem nefndin sem skipuð var 2005 skilaði af sér segir, með leyfi forseta:
„Frumvarp til breytinga eða viðauka á stjórnarskrá þessari má bera upp á Alþingi. Slíkt frumvarp má ekki samþykkja fyrr en það hefur verið rætt við fjórar umræður og skulu þrjár vikur hið minnsta líða á milli umræðna.“ — Ég undirstrika að það skulu þrjár vikur hið minnsta líða á milli umræðna. — „Hljóti frumvarp til stjórnarskipunarlaga samþykki a.m.k. 2/3 alþingismanna skal það lagt undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar. Skal atkvæðagreiðslan vera leynileg og fara fram í fyrsta lagi einum mánuði og í síðasta lagi fjórum mánuðum eftir samþykkt frumvarpsins. Sé meiri hluti gildra atkvæða fylgjandi frumvarpinu,“ — og svo kemur ákvæði sem ekki er að finna í nýja plagginu — „þó minnst 25 af hundraði allra kosningarbærra manna, skal það staðfest af forseta Íslands og öðlast þá gildi sem stjórnarskipunarlög.“
Í fyrirliggjandi frumvarpi segir:
„Frumvarp til breytinga eða viðauka á stjórnarskrá þessari má bera upp á Alþingi. Þegar Alþingi hefur samþykkt frumvarpið skal það borið undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu í leynilegri atkvæðagreiðslu til samþykktar eða synjunar.“ — Svo segir hérna: „Atkvæðagreiðslan skal fara fram í fyrsta lagi einum mánuði og í síðasta lagi þremur mánuðum eftir samþykkt frumvarpsins á Alþingi.“
Gott og vel. Þetta lýsir því náttúrlega bara mjög skýrt hve vinnubrögðin á Alþingi eru breytt, annars vegar í tíð Sjálfstæðisflokksins þar sem mikið var lagt upp úr samráði um breytingu á stjórnarskránni og því að allir flokkar fengju að koma að því, og hins vegar nú þegar þessu plaggi er troðið ofan í kokið á stærsta stjórnmálaflokki landsins.
Það eitt og sér er kannski ekki endilega það alvarlegasta heldur þau ótrúlegu vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið og kemur mjög skýrt fram í þeim umsögnum sem hér liggja fyrir. Eitt er það sem allir aðilar sem koma að þessum umsögnum kvarta meira og minna undan en það er einmitt stuttur umsagnarfrestur, ég hygg að hann hafi verið u.þ.b. vika. Þrátt fyrir að þessar umsagnir taki efnislega á mjög mörgum þáttum og í rauninni setji mjög mikið út á einstakar greinar þessa frumvarps er líka tekið fram að viðkomandi vildi gjarnan hafa haft betri tíma til að fara yfir málin.
Ég verð að segja alveg eins og er að mér hefur þótt það furðu sæta hjá fjölmiðlum landsins hvað þeir hafa lítið farið yfir málið og umsagnir sem lýsa þessum ótrúlegu vinnubrögðum. Það er ekki fyrr en fyrst núna, eftir þessa löngu umræðu, að þetta er farið að síast í gegn hjá einum og einum fjölmiðlamanni þar sem hann fer þá efnislega í það hversu ótrúlega stuttur tími þetta er sem gefinn er til umsagna og svo aftur hitt, efnislega þáttinn, þar sem farið er í einstakar greinar frumvarpsins og því lýst yfir hve illa ígrundaðar þær greinar eru í flestum tilvikum.
Eitt er náttúrlega alveg stórmerkilegt, að kjósa eigi til stjórnlagaþings um leið og farið er í sveitarstjórnarkosningar. Það er dálítið merkilegt því að miðað við það fyrirkomulag sem hér er lagt upp með að einstakir aðilar bjóði sig fram og verði kosnir í persónukjöri til stjórnlagaþingsins, þá er algerlega ljóst að fram mun fara tvenns konar kosningabarátta á sama tíma, annars vegar til sveitarstjórnarkosninga og hins vegar til stjórnlagaþingsins.
En maður skyldi nú ætla að þegar svo stórt er kveðið á um, eins og í þessu tilviki, að fram hefði farið eitthvert samráð. Ekki það, hæstv. forseti, að ég reikni með einhverju samráði við Sjálfstæðisflokkinn í þeim efnum eða minni hlutann á Alþingi. Ég reiknaði nú alls ekki með því. Hins vegar hefði mér þótt eðlilegt að farið hefði fram samráð og samræður milli Sambands íslenskra sveitarfélaga. En það er nú alls ekki svo.
Í Vísi þann 4. apríl kemur fram hjá Halldóri Halldórssyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga, að hann telur að það mundi skyggja á sveitarstjórnarkosningarnar að kosningar til stjórnlagaþings færu fram á sama tíma. En þar segir orðrétt, með leyfi forseta:
„„En ég myndi óttast að það myndi skyggja svolítið á sveitarstjórnarkosningarnar. Það væri sem sagt verið að velta fyrir sér baráttumálum í hverju sveitarfélagi um leið og verið væri að kjósa til stjórnlagaþings,“ segir Halldór. Þetta segir hann að sé mjög varhugavert.“
Þá vil ég aðeins glugga í athugasemdir sem komu einmitt fram hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga:
Í 2. gr. frumvarpsins segir, með leyfi forseta:
„Frumvarp til breytinga eða viðauka á stjórnarskrá þessari má bera upp á Alþingi. Þegar Alþingi hefur samþykkt frumvarpið skal það borið undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu í leynilegri atkvæðagreiðslu …“
Í 3. gr. segir: „Alþingi skal láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekin lög eða málefni sem varðar almannahag ef 15 af hundraði kjósenda krefjast þess.“
Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga segir, með leyfi forseta:
„Þær breytingar sem felast í 2. og 3. gr. frumvarpsins eru til þess fallnar að draga mjög úr áhrifum og sjálfstæði Alþingis. Eru þessar breytingar því í miklu ósamræmi við þær kröfur sem uppi hafa verið í þjóðfélaginu um að styrkja þurfi löggjafarvaldið og efla sjálfstæði þess. Sá mikli kostnaður sem óhjákvæmilega fylgir ákvörðun 3. og 4. gr. er einnig áhyggjuefni í þeim miklu efnahagsþrengingum sem þjóðin glímir nú við.“
Svo segir, með leyfi forseta:
„Stjórnarskrá lýðveldisins er grundvallarlöggjöf þessa lands sem öllum ber að virða. Þannig er stjórnarskránni ætlað að vera hafin yfir dægurþras og sveiflur í stjórnmálum.“ — Hafin yfir dægurþras og sveiflur í stjórnmálum, sagt og skrifað. — „Vegna mikilvægis stjórnarskrárinnar er nauðsynlegt að stjórnarskipunarlög séu sett að vel ígrunduðu máli og í sem mestri sátt. Af umræðu um frumvarpið má ráða að endurskoðun stjórnarskrárinnar sé nauðsynleg vegna þess efnahagshruns sem hér hefur orðið. Þær breytingar sem felast í frumvarpi til stjórnarskipunarlaga virðast hins vegar ekki sérstaklega til þess fallnar að stuðla að endurreisn efnahagskerfisins og væri því eðlilegt að bíða með allar meiri háttar breytingar þar til um hægist í þjóðfélaginu.“
Þetta er úr umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um lagafrumvarp þetta. Síðan segir áfram um 1. gr. sem snýr að einkaeignarréttinum og þjóðareigninni.
„Tilgangur ákvæðisins er fremur óljós og sömuleiðis hvaða áhrif ákvæðinu er ætlað að hafa. Í ákvæðinu felast einnig ýmis túlkunaratriði, t.d. hvað felst í því að eiga rétt á umhverfi sem stuðlar að heilbrigði.“ — Svo dæmi sé tekið.
Ég undirstrika það aftur, mér finnst svolítið merkilegt að fjölmiðlar hafi ekki farið efnislega í þessar athugasemdir. Um 2. gr. er sagt, með leyfi forseta:
„Í 2. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á því fyrirkomulagi sem nú gildir varðandi breytingar á stjórnarskránni. Í greininni er lagt til að stjórnarskipunarlög skuli lögð fyrir þjóðina til atkvæðagreiðslu, í fyrsta lagi mánuði og í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að Alþingi hefur endanlega samþykkt slíkt frumvarp. Kveðið er á um lágmarksstuðning sem frumvarpið þarf í þjóðaratkvæðagreiðslu til þess að teljast samþykkt. Af umræðum á Alþingi má ráða að sú breyting sem felst í 2. gr. frumvarpsins sé nokkuð óumdeild og í samræmi við nútímahugmyndir um lýðræði. Þá koma þjóðaratkvæðagreiðslur um stjórnarskrárbreytingar einnig í veg fyrir það að gerðar verði meiri háttar breytingar á íslenskri stjórnskipan án þess að þjóðinni sé gefið tækifæri til að taka beina afstöðu til þeirra.“
Þarna held ég einmitt að þeir hitti naglann á höfuðið, að um 2. gr. hefði mátt ná tiltölulega mikilli sátt og að því leytinu til hefði ekki verið vitlaust að horfa á þær athugasemdir og umsagnir sem hérna koma fram.
Þá er sagt um 3. gr. sem fjallar um þjóðaratkvæðagreiðsluna, með leyfi forseta:
„Ákvæðið gerir ráð fyrir að 15% kosningarbærra manna geti knúið fram slíka atkvæðagreiðslu. Þetta hlutfall er mjög lágt en hafa ber í huga að hér á landi ríkir fulltrúalýðræði og er þjóðkjörnum fulltrúum falið löggjafarvaldið á Alþingi.“
Síðar er sagt:
„Mikill kostnaður felst í þjóðaratkvæðagreiðslum, þannig væri nauðsynlegt að fram færi ítarleg kynning á því máli sem lagt er til þjóðaratkvæðagreiðslu auk þess sem mikill kostnaður er fólginn í framkvæmd slíkrar kosningar. Má í því sambandi benda á að alþingiskosningar kosta u.þ.b. 100 milljónir króna og má ætla að kostnaður við þjóðaratkvæðagreiðslu yrði sambærilegur. Af þessum sökum og með hliðsjón af þeirri réttaróvissu sem þjóðaratkvæðagreiðsla um samþykkt lög frá Alþingi skapar má verulega draga í efa hvort forsvaranlegt sé að 15% kosningarbærra manna geti með bindandi hætti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu.“
Hæstv. forseti. Þetta undirstrikar náttúrlega það hversu mikilvægt er að málinu sé ekki troðið hérna í gegn með því ofbeldi sem við erum að upplifa. Og sá skammi tími sem við upplifum líka í þessu samhengi er algerlega út í eilífan bláinn.
Þá er sagt um 4. gr., með leyfi forseta:
„Í 4. gr. frumvarpsins er lagt til að stofnað verði til sérstaks stjórnlagaþings vegna heildarendurskoðunar á stjórnarskrá lýðveldisins. Af greinargerð með frumvarpi til stjórnarskipunarlaga má ráða að sú aðferð hefur helst tíðkast meðal sambandsríkja en ekki eru fordæmi í öðrum ríkjum fyrir þeirri leið sem lögð er til í frumvarpinu.“
Ég held, hæstv. forseti, að við getum verið sammála um að við teljumst ekki til sambandsríkis þó svo að Samfylkingin vilji mjög gjarnan verða hluti af Evrópusambandinu og Evrópusambandið sé að þróast í þá veru, þá er það nú ekki orðið svo enn sem komið er.
Þá segir jafnframt, með leyfi forseta:
„Ekki hefur reynst nægilega vel að fella ábyrgð á þeirri vinnu eingöngu á stjórnmálamenn.“ — Þ.e. að breyta stjórnarskránni. — „Rétt er að skoða þann möguleika að endurskoðunarvinnan verði í höndum Alþingis en lögð verði meiri áhersla á það en áður að virkja almenning til þátttöku.“
Bent er á í þessu sambandi að í ljósi breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu, þar sem upplýsingatækni, aðgangur að upplýsingum og það að koma upplýsingum á framfæri er allt annað en áður var, væri miklum mun auðveldara að virkja almenning. Einnig er komið inn á það að mjög mikilvægt sé, og ætti það að vera auðvelt, að virkja samtök eins og samtök launþega og atvinnurekenda, náttúruverndarsamtök, samtök trúfélaga, neytenda, fatlaðra og grasrótarsamtök, svo eitthvað sé nefnt.
Hér eru því uppi mjög athyglisverðar hugmyndir um það hvernig koma mætti á stjórnlagaþingi án þess að það væri akkúrat gert nákvæmlega eins og hér er lagt til, með því ótrúlega umfangi og kostnaði sem því fylgir, þ.e. við gætum náð markmiðunum fram með öðrum hætti. En þetta er eitthvað sem ekkert er hlustað á, ekkert spáð í þrátt fyrir að þetta verði að teljast hinar fínustu hugmyndir.
Samband íslenskra sveitarfélaga er svo sem ekki eini aðilinn sem leggur til breytingar á sjálfu stjórnlagaþinginu. Mér finnst það vera dálítið mikið grundvallaratriði því eins og komið var hér inn á áðan hefði sennilega mátt ná góðri sátt um 2. gr. og síðan hefðu menn alveg getað sest niður og rætt um hvernig hægt hefði verið að koma stjórnlagaþingi á án þess að það væri gert akkúrat með þeim formerkjum sem við sjáum í frumvarpi þessu.
Hérna er mjög stór bunki sem lýtur að því sama, en tíminn er naumur og því er ekki hægt að fara efnislega nema í nokkur atriði í þessum athugasemdum og mörgum umsögnum verður hreinlega að sleppa.
Hér er umsögn frá Samorku þar sem komið er inn á hvernig farið er með skilgreiningu hugtaka. Þar segir, með leyfi forseta:
„Fyrst ber að nefna að í 1. gr. frumvarpsins eru ýmis hugtök sem Samorka telur þarfnast nánari skilgreininga. Dæmi um þetta er hugtakið „þjóðareign“. Hugtakið er skilgreint með vísan í umfjöllun auðlindanefndar árið 2000 en hefði þurft að skilgreina betur í athugasemdum við frumvarpið sjálft. Eða hvert er samspil þessarar nýju tegundar eignarréttar við hefðbundinn einkaeignarrétt eins og hann er skilgreindur í 72. gr. stjórnarskrárinnar?“
Síðan er tekið dæmi, hæstv. forseti, um annað hugtak sem er svona dæmigert tískuhugtak sem allir taka sér í munn en ekki er kannski alveg ljóst hvað liggur að baki. Hér segir, með leyfi forseta:
„Annað dæmi er hugtakið „sjálfbær þróun“ sem í athugasemdum við frumvarpið er m.a. skilgreint þannig: „þróun sem fullnægir þörfum samtíðarinnar án þess að skerða möguleika komandi kynslóða til að fullnægja sínum þörfum.“ Hvað þýðir að „fullnægja þörfum“ í þessu samhengi? Þessi skilgreining verður að teljast afar opin til túlkunar og því til þess fallin að stuðla að réttaróvissu.“ — Í framtíðinni.
Komið er inn á fleiri þætti og ég ætla að reyna að taka það helsta en sleppa þarf mörgum atriðum. Talað er um það efnislega að réttur almennings til að koma að ákvörðunum í ýmsum málum varðandi auðlindirnar sé mjög mikill. Hér segir, með leyfi forseta:
„Loks skal hér fjallað um efnisatriði 3. mgr. 1. gr. frumvarpsins, þar sem fjallað er um rétt til umhverfis sem stuðlar að heilbrigði, rétt til upplýsinga og kost almennings á þátttöku í undirbúningi ákvarðana sem áhrif hafa á umhverfið. Af athugasemdum við frumvarpið má ætla að þessi atriði sé að finna í til þess að gera nýjum stjórnarskrám ríkja Mið- og Austur-Evrópu og að þessi ákvæði hafi síðan verið sett inn í stjórnarskrár annarra Norðurlanda.“
Síðan rekja þeir það og benda á að svo sé alls ekki. Þarna er sem sagt verið að gefa eitthvað í skyn sem stenst síðan enga skoðun.
En það er fleira. Það sem vakti athygli í umsögnum sem komu fram við frumvarpið eru athugasemdir frá mönnum eins og Sigurði Líndal, sem verður að teljast einn af okkar helstu lögfræðingum og lagatúlkunarsérfræðingum og hefur oft verið til hans leitað. En með álit eða umsögn hans eins og allra hinna er náttúrlega ekkert gert.
Sigurður Líndal segir, með leyfi forseta:
„Ég tel að skoða þyrfti 1. gr. frumvarpsins betur vegna óljósrar merkingar orða og hugtaka sem þar eru notuð.“
Þetta er ekkert nýtt, hæstv. forseti. Það eru allir að benda á að hugtakanotkun sé mjög óljós. Hann kemur líka eins og fleiri inn á orðið þjóðareign.
„Í orðið þjóðareign er ekki hægt að leggja hefðbundna merkingu eignarréttarins þótt þess hafi margsinnis gætt í umræðu. Almenn merking orðsins eign er hins vegar svo margþætt að hana er ekki unnt að leggja til grundvallar í rökræðu. Það hefur þó óspart verið notað í kappræðu sem Íslendingar stunda gjarnan, en er þar til truflunar og ýfir upp deilur.“ Svo bætir hann við að það sé reyndar álitamál hvort nýtt eignarréttarhugtak hafi verið mótað.
Sigurður Líndal segir líka, með leyfi forseta:
„Enn óljósara og vandmeðfarnara er þó orðalagið í 3.–4. mgr. þar sem segir að allar náttúruauðlindir beri að nýta á sem hagkvæmastan hátt á grundvelli sjálfbærrar þróunar til hagsældar fyrir þjóðina og komandi kynslóðir auk þess sem allir eigi rétt til umhverfis sem stuðli að heilbrigði og þar sem líffræðilegri fjölbreytni sé viðhaldið.“
Þetta er nánast nákvæmlega sama efnisatriði og ég fór í áðan. Þetta er í rauninni gegnumgangandi í öllum umsögnunum og alveg með ólíkindum að ekkert sé spáð í þetta, og ég segi enn og aftur, það er alveg með ólíkindum hvað fjölmiðlar hafa gert þessu lítil skil. Eins og aðalatriðið sé að flugeldasýningarnar fari fram þegar myndavélarnar eru hér í hurðaropinu en efnisleg umræða virðist ekki eiga neitt upp á pallborðið.
Sigurður Líndal segir jafnframt, með leyfi forseta:
„Hvaða leiðsögn er hér að fá um hagkvæmni og hagsæld, eða um umhverfi sem stuðli að heilbrigði? Er nýting orku fallvatna og jarðhita til stóriðju hagkvæm eða stuðlar hún að hagsæld? Um þetta hafa deilur lengi staðið og ákvæðið sker engan veginn úr – veitir raunar enga leiðsögn. Hitt er líklegra að yfirlýsingar af þessu tagi hvort heldur í stjórnlögum eða almennum lögum egni til deilna og málaferla. Og þá er spurningin: Ætlar stjórnarskrárgjafinn að fela dómstólum lagasetningarvaldið með því að knýja þá til að móta reglur í þessum anda, eða eiga dómstólar að leiða slík ákvæði hjá sér þannig að þau verði dauður bókstafur? Hver er þá tilgangurinn?“
Ég spyr líka, hæstv. forseti, og tek undir þá spurningu: Hver er þá tilgangurinn?
Það sem hann kemur einnig inn á, eins og Ragnhildur Helgadóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík, er sú hugleiðing um hvers konar plagg stjórnarskráin er. Hann segir, með leyfi forseta:
„Beinast liggur við að líta á hana sem lög sérstaks eðlis með rætur í stofnsáttmála ríkis. En einnig má skoða hana sem tákn. Enginn ágreiningur er um að stjórnarskrá geymi lagafyrirmæli, en hún hefur einnig tákngildi og þá er meira álitamál um hversu langt skal ganga í þá átt. Ef áherslan færist þangað má segja að yfirlýsingar um grunngildi þjóðfélagsskipunarinnar eigi best heima í sérstökum inngangskafla sem hefur ekki beint lagagildi en er til leiðsagnar.“
Þá segir Sigurður Líndal einnig, með leyfi forseta:
„Ef setja á landinu nýja stjórnarskrá tel ég rétt að það sé gert á sérstöku stjórnlagaþingi. Rökin eru einföld. Með stjórnarskrá er verið að setja Alþingi reglur, meðal annars verið að marka valdsvið þess, og því eðlilegt að Alþingi sjálft eigi þar ekki hlut að. Hins vegar sé ég ekki ástæðu til að útiloka alþingismenn fyrir fram; eðlilegast að kjósendur til stjórnlagaþingsins ákveði það ef þingmenn vilja vera í framboði.
Annars get ég ekki dulið þá skoðun mína að ólíklegt sé að þing skipað 41 manni valdi þessu verkefni.“
Hæstv. forseti. Ég kom einmitt inn á þetta áðan. Af hverju 41? Af hverju einmitt þessi útgáfa af stjórnlagaþingi? Hvers vegna mátti ekki ræða þetta? Hvers vegna mátti ekki fara yfir þetta mál? Af hverju mátti ekki reyna að ná einhvers konar sátt um hvernig staðið yrði að stjórnlagaþingi? Í störfum þeirra þingmanna sem fjölluðu um þetta voru menn tilbúnir til að ræða það og auðvitað hefði átt að gera það. Samþykkja hefði átt breytingu á stjórnarskránni sem menn gátu sætt sig við og síðan áttu menn að vera sammála um að bíða með stjórnlagaþingið og sammælast um það, allir flokkar, hvernig að því skyldi staðið. Það gefur augaleið að hægt var að ná miklu meira saman um þetta mál.
„Líklegast að þingið þróist yfir í eins konar umræðufund og þrætusamkomu sem sökkvi niður í deilur sem engu skili.“
Þetta segir Sigurður Líndal eftir að hann er búinn að segja: „Ef setja á landinu nýja stjórnarskrá tel ég rétt að það sé gert á sérstöku stjórnlagaþingi.“ Hins vegar er hægt að hugsa stjórnlagaþing á marga vegu. Og hann heldur áfram, með leyfi forseta:
„Vænlegra væri að fá lítinn hóp valinkunnra manna sem njóta almenns trausts til að setja saman tillögu að stjórnarskrá. Hana mætti bera undir stjórnlagaþing sem hefði skýrt afmarkað hlutverk og að lokum gengi hún til þjóðaratkvæðis.“
Ég verð að segja alveg eins og er, hæstv. forseti, að ég tel að hugmynd Sigurðar Líndal hefði getað nálgast hugmyndir Sjálfstæðisflokksins í þessa veru og alveg hefði verið hægt að ræða hvernig staðið yrði að stjórnlagaþingi þó svo að ekki hefði verið farið í einu og öllu eftir þessari vitleysishugmynd sem hér er fram komin og þau gerræðislegu vinnubrögð þar sem einn og stærsti þingflokkurinn kemur hvergi að og allir ráðgjafar varðandi smíði þessa frumvarps er eitthvert hallelúja-lið, hallelúja-fólk stjórnarliðanna. Það er bara þannig.
Tíminn flýgur. (HHj: … Björg Thorarensen …) Ja, hún var beðin um að vera ráðherra í þeirri ríkisstjórn sem nú situr, hún er ein af þessum aðilum. Hv. þm. Helgi Hjörvar kallar utan úr sal, en þess ber að geta að hann missti af upphafi ræðu minnar þar sem ég bar saman störf nefndarinnar sem starfaði árið 2005 og þau vinnubrögð sem þar voru viðhöfð — þar voru aðilar sem alveg klárlega var ekki hægt að stimpla sem sjálfstæðismenn nema síður væri — við þau vinnubrögð sem nú eru viðhöfð. Björg er vissulega þarna og fleiri aðilar eins og t.d. fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, Bryndís Hlöðversdóttir, og Gísli Tryggvason einnig en hann hefur verið eins og allir vita sérstakur ráðgjafi Framsóknarflokksins. Þetta er allt saman ágætisfólk en ég er bara að tala um samsetninguna. Fyrst hv. þingmaður kallar hérna fram í þá er ég að tala um samsetninguna á hópnum, annars vegar frá 2005 og hins vegar núna sem sýnir algerlega ný vinnubrögð.
Mig langar aðeins í lok ræðu minnar að koma inn á það álit sem Ragnhildur Helgadóttir skrifar en hún er prófessor við Háskólann í Reykjavík. Hún segir, með leyfi forseta:
„Hvaða breytingar er rétt að gera gegn vilja minni hluta?“ — Ég fagna því að hv. þm. Álfheiður Ingadóttir skuli vera í salnum. — „Stjórnarskrár eru ólíkar öðrum lögum að setningarhætti og vegna þess að þær eiga að leggja stórar línur og vera hafnar yfir pólitískar deilur á hverjum tíma. “
Það var einmitt lagt upp með þetta árið 2005, eins og sjá má af samsetningu nefndarinnar og sjá má af samsetningu ráðgjafarhópsins. Þá segir líka í umsögninni að furðulegt sé að gera þetta í andstöðu við stóran stjórnmálaflokk því með því sé verið að færa stjórnarskrána inn í hringiðju stjórnmálanna.
Enn fremur segir Ragnhildur Helgadóttir, með leyfi forseta:
„Þess má vænta að næsti meiri hluti geri þær breytingar sem honum hugnast án þess að takmarka sig við það sem næst almenn sátt um á þingi og þannig koll af kolli. Þannig getur stjórnarskráin orðið óstöðugri og pólitískari en verið hefur, sem er óæskileg þróun.“
Ef þetta er hugsað í samhengi við það sem Sigurður Líndal sagði og ég las upp áðan um það hvers konar plagg stjórnarskráin væri, þá held ég að algert samræmi sé þarna á milli þessara tveggja fræðimanna.
Þá segir, með leyfi forseta, um ákveðnar breytingar á stjórnarskránni, þ.e. um 2. og 4. gr. frumvarpsins:
„Það má færa að því sterk rök að það sé í samræmi við lýðræðishugmyndir og lýðræðishefðir að færa ákvörðunarvald um stjórnarskrárbreytingar til kjósenda“ — það getur maður tekið heils hugar undir — „og að því sé ásættanlegt að einstakir stjórnmálaflokkar séu mótfallnir breytingunum.“ — þ.e. þegar umboðið er síðan fært til þjóðarinnar og þá er það bara leyst þar. — „Hugmyndin er þá sú að það sé í lagi að ganga fram hjá fulltrúum stórs hluta kjósenda þegar málinu sé vísað til þeirra sjálfra.“
Svo segir hérna, með leyfi forseta:
„Vegna þessa og þess stutta tíma — eins og allir sem gáfu umsögn segja og kvarta undan — mun ég ekki fjalla um ákvæði 1. gr.“
Síðan bendir Ragnhildur Helgadóttir á, sem reyndar fleiri hafa komið inn á, að verið sé að skipa málum með svipuðum hætti og gert sé í sambandsríkjum, sem Ísland er vissulega ekki og við forseti vorum algerlega sammála um.
Þá segir, með leyfi forseta, og er það kannski ekki ósvipað því sem Sigurður Líndal kom inn á:
„Oft er það þvert á móti til marks um róttæka og virta lýðræðis- og stjórnskipunarhefð að stjórnarskráin sé komin til ára sinna.“
Það hafa einmitt verið stór rök í umræðunni, þ.e. að svo langt sé síðan stjórnarskránni var breytt.
Hæstv. forseti. Tími minn er liðinn. Eins og sjá má eru vinnubrögðin sem hér eru höfð uppi, miðað við vinnubrögðin frá 2005, algerlega ný nálgun og alveg fáránleg ósvífni sem hér er í gangi. Í öðru lagi er algerlega ljóst að alveg hefði mátt ræða það hvernig staðið hefði verið að stjórnlagaþinginu og það sett upp, þá með allt öðrum formerkjum en hér hefur verið gert.