stjórnarskipunarlög.
Herra forseti. Þetta hefði verið ágætis ræða hjá hv. þm. Ármanni K. Ólafssyni ef hún hefði verið flutt við annað tækifæri, við aðrar aðstæður, þ.e. ef engar breytingartillögur lægju hér fyrir. En þeim sem á hlýddu mátti ljóst vera að þingmaðurinn var að fjalla um frumvarpið eins og það var til umræðu við 1. umr. og þær athugasemdir sem gerðar voru og kynntar í nefndinni en ekki niðurstöðu nefndarinnar sem hér liggur fyrir. Þess vegna er alrangt sem hv. þingmaður sagði að ekkert hefði verið hlustað á þær umsagnir. Hér liggur fyrir nefndarálit frá meiri hluta hv. sérnefndar um stjórnarskrármál upp á einar sex blaðsíður sem ég held að þingmaðurinn hafi ekki kynnt sér til hlítar.
Ég ætla nú ekki að fjalla meira til viðbótar við það sem ég hef gert í dag um þær rangfærslur sem menn viðhafa um stjórnlagaþingið. En ég ætla að svara hv. þingmanni hvað varðar sjálfbæra þróun því að hann spyr hvað það eigi að þýða. Nú er tími minn að renna út og ég verð fá að svara því í næsta andsvari. En ég vek athygli þingmannsins á því að það ákvæði sem hann fjallaði um og eyddi drjúgum tíma af ræðu sinni í er með tillögunni fellt út úr frumvarpinu. Er þetta dæmi um það sem ég sagði áðan að ræða hv. þingmanns hefði betur verið flutt við aðrar aðstæður. Hún á ekki við í þingsalnum í dag.