136. löggjafarþing — 127. fundur,  6. apr. 2009.

stjórnarskipunarlög.

385. mál
[21:47]
Horfa

Ármann Kr. Ólafsson (S) (andsvar):

Forseti. Það sem ég gerði í stórum hluta ræðu minnar var að ég bar saman vinnubrögðin við skipun nefndarinnar 2005 og þau vinnubrögð sem nú eru viðhöfð. Það var grundvallaratriðið í ræðu minni.

Það er rétt að sem betur fer er nú tekið á einstökum atriðum og einstökum athugasemdum. Það hafa orðið breytingar í þá veru sem betur fer. En ef ég man rétt fjallar Davíð Þór Björgvinsson um réttarfarsleg áhrif vegna þjóðareignarinnar og ég gat ekki t.d. séð að tekið væri neitt sérstaklega á því efni. Það tel ég að hafi verið ein stærsta athugasemdin en því miður komst ég ekki yfir það áðan að tala sérstaklega um það atriði.

Athugasemdir mínar sneru fyrst og fremst að því hversu ótrúleg vinnubrögð voru í nefndinni og hvernig staðið var að því að semja frumvarpið sjálft. Ég bar það saman við það þegar nefndin var skipuð 2005 þar sem allir flokkar höfðu fulltrúa í nefndinni. Þeir fræðimenn sem fengnir voru til að vinna fyrir nefndina voru alveg klárlega fræðimenn sem ekki var hægt að stimpla sérstaklega sem einhverja fulltrúa Sjálfstæðisflokksins nema síður væri. Hins vegar er því öfugt farið með nefndina núna og þann ráðgjafahóp sem er að baki því fólki sem samdi þetta lagafrumvarp.