stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Það er af og frá að í þessari umræðu felist einhverjar árásir á forseta heldur kannski frekar forvitni því að mér telst til að það sé um það bil klukkustund síðan hv. þm. Illugi Gunnarsson lauk máli sínu. Hann að vísu kvartaði undan því að ræða hans hefði ekki vakið þá athygli sem hann taldi að hún hefði átt að fá og að salurinn hefði ekki fyllst af áhugasömum þingmönnum. Þess ber þó að geta að það hefur örugglega verið fylgst með ræðunni héðan úr sjónvarpi og úr herbergjum.
En það sem hlýtur að vekja talsverða athygli er að enn eru 18 ræðumenn á mælendaskrá sem geta talað ýmist í 40, 20 eða 10 mínútur. En hv. þm. Illugi Gunnarsson er hér á klukkustundar fresti og það þarf nú ekki að koma á óvart að salurinn fyllist ekki í hvert eitt sinn sem hv. þingmaður tekur til máls þegar hann talar svona ört.
Við skulum (Forseti hringir.) að minnsta kosti reyna að tryggja að hér verði einhverjir í salnum til að fylgjast með svo þetta eigi sér ekki stað á klukkutíma fresti.