stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Ég verð nú að segja eins og er að mér þykir gamansemi hv. þingmanna nokkuð áhugaverð. Sérstaklega þótti mér gaman að hlýða á ræðu hv. þm. Lúðvíks Bergvinssonar áðan. Eftir að hafa hlustað á hana skil ég betur svona gullkorn sem hv. þingmaðurinn skrifar undir í nefndaráliti, eins og til dæmis þetta hér: „Ný stjórnarskrá lýðveldisins Íslands mun verða að stjórnarskrá þjóðarinnar allrar.“
Maður svona einhvern veginn fær þarna áhugaverða innsýn í hugarheim þingmannsins og þeirra sem undir þetta skrifa, að þetta er nokkuð sem þeir telja að þurfi að taka sérstaklega fram. Auðvitað er það svo að stjórnarskrá lýðveldisins er stjórnarskrá landsins alls. Ekki eru tiltekin nein sérstök önnur svæði. En ég held að þingmenn ættu að spara sér gamansemina. Einhverjir þeirra sem hafa átt erfitt með að læra á sjónvarpstækin sín til þess að finna út hvernig þeir geta hækkað þannig að þeir geti fylgst með umræðum um stjórnarskrána ættu að leita aðstoðar þingvarða. Margir þeirra gætu ábyggilega (Gripið fram í.) hjálpað hv. þingmanni. (Forseti hringir.) Þetta er ekki flókið. Aðalatriðið er að menn sýni stjórnarskránni eilítið meiri virðingu, taki þátt í (Forseti hringir.) umræðum og sýni það að þeim sé nokkuð annt um virðingu Alþingis.